Ný samræmd próf prufukeyrð í 26 skólum landsins
Ný samræmd próf í lesskilningi og stærðfræði hafa nú verið lögð fyrir 7.000 nemendur í 26 skólum landsins. Fyrirlögninni var ætlað að prufukeyra nýtt samræmt námsmat, Matsferil, þannig að hægt verði að leggja ný samræmd próf fyrir nemendur frá 4. bekk og upp úr í öllum grunnskólum landsins næsta vor.
Um er að ræða fjórtán ný próf, sjö í lesskilningi og sjö í stærðfræði. Prófin verða skyldubundin í 4., 6. og 9. bekk samkvæmt frumvarpi um Matsferil sem nú er til meðferðar á Alþingi. Tilgangur þessarar fyrirlagnar var að leggja lokahönd á stöðlun og þróun prófanna, auk þess að prófa þau í framkvæmd. Fyrirlögnin gekk vel og vinnur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu nú úr niðurstöðunum.
Matsferill er safn matstækja sem dregur upp heildstæða mynd af námslegri stöðu og framförum nemenda, reglulega yfir skólagönguna. Matstækjunum er ætlað að auðvelda starfsfólki skóla að miða kennslu við þarfir hvers barns og tryggja að það fái viðeigandi kennslu og stuðning. Þau gefa fleiri og fjölbreyttari mælingar á námsframvindu barna og gefa kennurum kost á að bregðast hraðar við þegar börn sýna merki um að dragast aftur úr í námi.
„Eitt af mínum helstu stefnumálum er að bæta læsi og lesskilning barna – það er undirstaða lærdóms og betri menntun þýðir meiri frami og minni fátækt. Þar gegnir snemmtæk íhlutun lykilhlutverki en til þess þurfum við betri greiningartól. Búið er að undirbyggja vel nýtt námsmat og er nú komið að innleiðingu sem ég mun beita mér fyrir að gangi hratt og snurðulaust fyrir sig,“ segir Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra.
„Við erum í skýjunum yfir hvernig til tókst og viljum færa öllum þeim sem komu að þessu mikilvæga verkefni okkar allra bestu þakkir. Jákvætt viðhorf kennara og skólastjórnenda skipta sköpum, svo ekki sé minnst á öll börnin sem þreyttu prófin,“ segir Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, og bætir við að líklega sé um að ræða stærsta framfaraskref tengt námsmati íslenskra barna í áratugi: „Það verður auðvitað bylting að geta fylgst með námsframvindu hvers einasta barns nánast í rauntíma og þannig mætt hverju þeirra þar sem þau eru stödd hverju sinni.“