Kyrrstaða rofin um hjúkrunarheimili á Húsavík: Fjögurra ára gömul hola heyrir brátt sögunni til
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings, undirrituðu í dag samning sem ætlað er að tryggja framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili í Norðurþingi. Árið 2021 var skóflustunga tekin að nýju hjúkrunarheimili við Auðbrekku 2 og í kjölfarið grafið fyrir grunni hússins. Ekkert varð hins vegar af sjálfri byggingu hjúkrunarheimilisins.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að nú verði breyting á. „Nú spýtum við í lófana og tryggjum íbúum Norðurþings hjúkrunarheimilið sem þeir hafa beðið eftir svo árum skiptir. Það er táknrænt að við rjúfum kyrrstöðuna með því að undirrita samninginn ofan í holunni sem safnað hefur vatni síðustu ár. Áfram gakk!“ segir ráðherra.
„Barátta sveitarstjórna Norðurþings og nágrannasveitarfélaganna fyrir nýju hjúkrunarheimili hefur staðið í mörg ár. Því er afar ánægjulegt að undirrita í dag samkomulag um uppbyggingu 60 rýma hjúkrunarheimilis á Húsavík án ábyrgðar sveitarfélaganna á fjármögnun. Undirbúningsvinna hefur gengið vel síðustu mánuði og það verður stór stund þegar íbúar og starfsfólk Hvamms geta flutt úr núverandi húsnæði sem er barn síns tíma og í nýja hjúkrunarheimilið,“ segir Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri í Norðurþingi.
Viðstaddir undirritunina í dag voru íbúar hjúkrunarheimilisins Hvamms en áðurnefnt framkvæmdasvæði er þar fyrir aftan. Á nýja hjúkrunarheimilinu verða 60 hjúkrunarrými og munu allir 54 íbúar Hvamms flytja yfir þegar heimilið verður opnað. Nýja heimilið leysir þannig það eldra af hólmi, auk þess sem hjúkrunarrýmum í sveitarfélaginu fjölgar um sex.
Samkvæmt samningnum útvegar Norðurþing ríkinu lóðina sem mun á næstu dögum auglýsa eftir aðila til að byggja hjúkrunarheimilið. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í desember á þessu ári eða í janúar 2026 og standi til lok árs 2027. Ríkið mun síðan leigja húsið með leigusamningi til 20-30 ára. Fyrirkomulagið sem gengið var út frá þegar grafið var fyrir grunni hússins gerði ekki ráð fyrir leigusamningi.
Bætt þjónusta við eldra fólk
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.
Þann 19. mars síðastliðinn var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og er það grunnurinn að samningnum sem undirritaður var í dag. Í apríl kom fram að ráðgert er að taka í notkun 120 hjúkrunarrými á þessu ári og afla 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026-2028.
Í byrjun maí tók félags- og húsnæðismálaráðherra fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði og fyrir viku mundaði hún sleggju í Reykjavík en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði við Nauthólsveg sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
Fyrr í dag var ráðherra á Akureyri þar sem hún undirritaði samning við bæjarstjóra Akureyrar um nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt 2.