Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili á Akureyri
Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili mun rísa við Þursaholt 2 á Akureyri. Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu samkomulag þess efnis í dag og skoðuðu byggingarstaðinn ásamt fulltrúum úr bæjarstjórn, öldungaráði og stjórn félags eldri borgara á Akureyri.
„Ég er afar ánægð með að nýtt hjúkrunarheimili rísi á Akureyri og óska Akureyringum hjartanlega til hamingju. Gríðarleg þörf hefur verið fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á Íslandi og nú er verkstjórn tekin við sem setur málið á dagskrá. Uppbygging hjúkrunarheimila er nú hafin fyrir alvöru,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
„Það er ánægjulegt að sjá þetta mikilvæga verkefni verða að veruleika í góðu samstarfi við ríkið. Bygging nýs hjúkrunarheimilis er mikið framfaraskref fyrir Akureyri og skiptir máli fyrir alla bæjarbúa – ekki síst eldra fólk og aðstandendur þeirra. Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta þjónustu við eldri borgara og þetta verkefni er stór þáttur í þeirri vegferð,“ segir Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar.
Samkvæmt samningunum útvegar Akureyrarbær ríkinu lóðina og á næstunni verður auglýst eftir aðila til að byggja hjúkrunarheimilið. Ríkið mun síðan leigja húsið með leigusamningi til 20-30 ára. Þursaholt er talin afar hentug staðsetning, þar sem innviðir eru þegar til staðar. Þá mun Akureyrarbær afhenda lóð við Þursaholt 4-12 fyrir byggingu íbúða og þjónustu fyrir eldra fólk byggt á hugmyndafræði um lífsgæðakjarna.
Bætt þjónusta við eldra fólk
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.
Þann 19. mars síðastliðinn var tilkynnt að samkomulag væri í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Í apríl kom fram að ráðgert er að taka í notkun 120 hjúkrunarrými á þessu ári og afla 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026-2028.
Í byrjun maí tók félags- og húsnæðismálaráðherra fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili í Ási í Hveragerði og fyrir viku mundaði hún sleggju í Reykjavík en þar verður ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæði við Nauthólsveg sem breytt verður í hjúkrunarheimili.
Síðar í dag heldur ráðherra á Húsavík þar sem hún undirritar samning við sveitarstjóra Norðurþings vegna hjúkrunarheimilis við Auðbrekku á Húsavík.
Miðað er við að framkvæmdir á Akureyri hefjist árið 2026 þannig að taka megi hjúkrunarheimilið í notkun í árslok árið 2028.
Kampakátar í Þursaholtinu í hádeginu í dag!
Samningurinn undirritaður.
Stuð og stemmning í Þursaholtinu.