Spretthópi falið að meta Kveikjum neistann og framhald
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað spretthóp sem ætlað er að meta stöðu tilraunaverkefnisins Kveikjum Neistann, árangur þess og tækifæri og koma með tillögur að möguleikum í þróun verkefnisins í þágu barna hér á landi.
Verkefnið, sem Grunnskóli Vestmannaeyja hóf haustið 2021, miðar að heildstæðri nálgun á skólastarfið. Áhersla er lögð á grunnfærni í lestri, náttúrufræði og stærðfræði, hugarfar, hreyfingu og áhugahvöt, þar sem barnið er ávallt í fyrirrúmi.
Niðurstöður PISA kannana undanfarin ár hafa sýnt fram á nauðsyn þess að bregðast við stöðu íslenskra barna, m.a. í lesskilningi og stærðfræði. Guðmundur Ingi Kristinsson, barna- og menntamálaráðherra, hefur bent á að kennarar þurfi öflug verkfæri til að takast á við þennan vanda. Kveikjum neistann er einmitt eitt slíkt verkfæri.
Í spretthópnum eru:
- Tryggvi Hjaltason, formaður og fulltrúi ráðherra
- Hafþór C. Benediktsson, lögfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu
- Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja
- Einar Gunnarsson, skólastjóri Barnaskólans í Vestmannaeyjum
- Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Hamarsskóla í Vestmannaeyjum
- Helga Sigrún Þórsdóttir, deildastjóri fræðslu- og uppeldissviðs í Vestmannaeyjum
- Ingunn Ásta Sigmundsdóttir, sérfræðingur í grunnskólamálum Reykjavíkurborgar
- Guðbjörg Rut Þórisdóttir, læsisfræðingur hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Með hópnum starfar einnig starfsmaður mennta- og barnamálaráðuneytisins.
Hópurinn mun skila ráðherra niðurstöðum með stöðutöku og ráðleggingum um næstu skref fyrir 1. júlí nk.