Hoppa yfir valmynd
26. maí 2025 Atvinnuvegaráðuneytið

Styrkir til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði á árinu 2025. Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.

Athygli er vakin á að sækja ber sérstaklega um styrki í garðyrkju, skv. ákvæðum reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020. Í öðrum landbúnaði er sótt um styrki samkvæmt ákvæðum reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021.

Sótt er um á Afurð og er umsóknarfrestur er til miðnættis 23. júní nk. Á Afurð má einnig finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn.

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta