Áréttuðu stuðning Íslands í heimsókn til Úkraínu
Fulltrúar utanríkisráðuneytisins heimsóttu Úkraínu í síðastliðinni viku þar sem þau áttu fundi með stjórnvöldum og samstarfsaðilum og ræddu við fulltrúa ráðuneyta, alþjóðastofnana, félagasamtaka, hugveitna og heimafólk um stöðu mála nú þegar þrjú ár og þrír mánuðir eru liðnir frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu.
Þar heimsótti hópurinn verkefni sem Ísland styður, en íslensk stjórnvöld hafa veitt mannúðaraðstoð til nauðstaddra auk efnahagsstuðnings til Úkraínu, m.a. til að viðhalda grunnþjónustu. Bróðurpartur framlaganna rennur til þeirra alþjóðastofnana sem íslensk stjórnvöld leggja áherslu á samstarf við, svo sem Alþjóðabankann og stofnanir Sameinuðu þjóðanna (SÞ).
Á fundum með úkraínskum stjórnvöldum, þar á meðal með fulltrúa utanríkisráðuneytisins, var stuðningur íslenskra stjórnvalda við uppbyggingu í Úkraínu áréttaður, en áhersla hefur verið lögð á að óskir og þarfir Úkraínu séu þar í fyrirrúmi auk málefnasviða þar sem Ísland hefur sérstaka þekkingu og reynslu fram að færa.
Ísland styður við nýtingu jarðhita í Úkraínu
Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á stuðning við orkumál, en orkuver og aðrir innviðir hafa sætt kerfisbundnum árásum rússneska innrásarhersins. Fundað var með helstu samstarfsaðilum íslenskra stjórnvalda á því sviði, þ.e. sérstökum orkusjóði fyrir Úkraínu (e. Ukraine Energy Support Fund) og þróunaráætlun SÞ (UNDP) sem leiðir verkefni sem styður vinnu úkraínskra stjórnvalda við endurbyggingu rafstöðva og dreifikerfa, svo tryggja megi áframhaldandi aðgang að grunnþjónustu á stríðshrjáðum svæðum.
Þá áttu sér stað fundir með fulltrúum orkumálaráðuneytisins og Ukrenergo sem sér um rekstur dreifikerfis raforku, en auk þess að fara yfir áframhaldandi samstarf í gegnum alþjóðastofnanir var rætt um stuðning á sviði jarðhita. Úkraínsk stjórnvöld vinna nú að stefnu um nýtingu jarðhita í landinu og munu íslensk stjórnvöld veita þeim stuðning í formi þjálfunar og fræðslu fyrir sérfræðinga og embættismenn í gegnum Jarðhitaskóla GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu.
Að auki fundaði íslenski hópurinn með fulltrúum Alþjóðabankans, en stór hluti framlaga íslenskra stjórnvalda hefur farið til sjóða bankans. Alþjóðabankinn gegnir fjölþættu lykilhlutverki í Úkraínu hvort sem um er að ræða mat á skemmdum eða fjármagnsþörf til uppbyggingar, viðhalda efnahag og grunnþjónustu landsins, uppbyggingu innviða eða umbótastarf.
Þrettán Barnahús að íslenskri fyrirmynd
Stofnanir SÞ gegna jafnframt mikilvægu hlutverki í landinu, hver á sínu málefnasviði, og heimsótti sendinefndin verkefni Barnahjálpar SÞ (UNICEF), Mannfjöldasjóðs SÞ (UNFPA) og Flóttamannastofnunar SÞ (UNHCR). Framlag íslenskra stjórnvalda til UNICEF í Úkraínu er varið til verkefnis um Barnahús í Úkraínu, en nú eru rekin 13 slík úrræði að íslenskri fyrirmynd í landinu. Miðar verkefnið að því að börn sem verða fyrir, eða verða vitni að ofbeldi, áreiti eða misnotkun fái viðeigandi úrræði. Auk framlagsins munu sérfræðingar frá Barna- og fjölskyldustofu og Barnahúsi á Íslandi koma að þjálfun og fræðslu í Úkraínu í tengslum við verkefnið með komandi hausti.
Í gegnum UNFPA hefur framlögum íslenskra stjórnvalda verið varið til verkefna sem miða að því að bæta aðgang og gæði þjónustu á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis og -réttinda. Sendinefndin heimsótti eina af þeim miðstöðvum þar sem kvensjúkdóma- og kynheilbrigðisþjónusta er gerð aðgengilegri fyrir fatlaða einstaklinga og viðkvæma hópa og fæðingasjúkrahús sem tekur á móti barnshafandi konum í áhættuhóp, þar sem sérstök áhersla var lögð á að búa vökudeildinni nýjan tækjakost.
Íslensk stjórnvöld hafa í gegnum UNHCR veitt stuðning við einstaklinga og fjölskyldur sem hafa neyðst til að flýja heimili sín, hvort sem er vegna skemmda í kjölfar árása eða yfirvofandi hættu. Stuðningur UNHCR er fjölþættur, og felur m.a. í sér neyðarviðgerðir á húsnæði í kjölfar árása, s.s. bráðabirgðalausnir fyrir þök og glugga, aðstoð við að finna nýtt húsnæði þegar þörf er á, sálgæslu og fjárhagsstuðning auk þess að styðja við efnalitlar fjölskyldur við endurbætur á húsnæði sem er illa búið undir frosthörkur vetrarins.