Innviðaráðherra ræddi viðnámsþol innviða á aðalfundi alþjóðasamtaka samgönguráðherra
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sótti aðalfund alþjóðasamtaka samgönguráðherra (ITF - International Transport Forum) í Leipzig í síðustu viku. Á fundinum var m.a. rætt um það hvernig mætti tryggja betur viðnámsþol samgöngukerfa og innviða gagnvart áföllum af ýmsu tagi. Um 1200 gestir frá 69 löndum sóttu þennan árlega viðburð.
Í ávarpi sínu greindi ráðherra frá góðum árangri sem Ísland hefur náð á sviði umferðar- og sjóöryggis. Á síðustu áratugum hafi tekist að fækka dauðaslysum á sjó verulega, en á einstökum árum undanliðin ár hefur ekkert banaslys orðið. Einnig hafi banaslysum í umferð fækkað um 64% þrátt fyrir stóraukna umferð vegna fjölgunar ferðamanna. Ráðherra lagði áherslu á að Ísland myndi standa við alþjóðlegt markmið um að helminga fjölda banaslysa í umferðinni fyrir árið 2030.
Ráðherra tók loks þátt í pallborðsumræðum um viðnámsþol vinnuafls og viðbúnað í neyðarástandi. Þar sagði Eyjólfur frá reynslu Íslendinga af eldgosum á Reykjanesskaga og aðlögunarhæfni Grindvíkinga sem vekti athygli á alþjóðavísu. Það var eindregin niðurstaða ráðstefnunnar að mikilvægt væri að fjárfesta í starfsfólki, þjálfun þess og undirbúningi þar sem raunverulegt öryggi og viðnámsþol grundvallaðist ávallt á að eiga öflugan mannauð.
Alþjóðasamtök samgönguráðherra (ITF) eru stærstu alþjóðleg samtök innan OECD. Þau hafa það markmið að stuðla að samvinnu þjóða í málefnum samgangna. Samtökin standa að viðamiklum rannsóknum sem ætlað er að vera grundvöllur fyrir stefnumótun á öllum sviðum samgangna.
Fundurinn er stærsti sameiginlegi viðburður samgönguráðherra í heiminum og helsti vettvangur skoðanaskipta í stefnumótun á sviði samgangna. Auk ráðherra sækir fundinn áhrifafólk úr stjórnmálum, atvinnulífi, félagasamtaka auk háskóla- og rannsóknasamfélagsins.
- Nánar um fundinn á vegum ITF (International Transport Forum)