Samhent eru Evrópa og Norður Ameríka sterkust
Árásarstríð Rússlands í Úkraínu, öryggismál á norðurslóðum og framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins (NATO) voru meðal umræðuefna á tvíhliða fundi Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem fram fór í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel í dag. Mikilvægi Atlantshafstengslanna voru einnig til umræðu, sem og mótun nýrrar öryggis- og varnarstefnu fyrir Ísland.
„Það er mikið undir í öryggis- og varnarmálum og ljóst að framlag Íslands til Atlantshafsbandalagsins er afar vel metið. Ísland er meðal stofnríkja NATO og hefur verið traust og verðugt bandalagsríki í 76 ár. Svo verður áfram. Þrátt fyrir stöðu Íslands sem herlaust ríki, sem ríkur skilningur er á, höfum við tekist á herðar auknar skuldbindingar og aukið framlög til varnartengdra mála á umliðnum árum, og munum halda áfram á þeirri vegferð. Á það bæði við um eigin og sameiginlegar varnir og stuðning við Úkraínu, sem er jafnframt okkar fyrsta varnarlína. Þar undir eru einnig alþjóðalög og sameiginleg gildi. Þá blasir við að Ísland hefur ríku hlutverki að gegna í öryggis- og varnarmálum á nærsvæði okkar á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og mikilvægt að hlúa að Atlantshafstengslunum. Saman og samhent eru Evrópa og Norður Ameríka sterkust,” segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Dick Schoof, forsætisráðherra Hollands.
Forsætisráðherra átti í gær fund með Dick Schoof, forsætisráðherra Hollands, í Haag. Þar ræddu ráðherrarnir meðal annars um leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem fram fer í Haag 24.-25. júní nk., eflingu Evrópustoðar NATO og öryggismál á norðurslóðum.
„Hollendingar eru afar mikilvægir bandamenn okkar innan NATO og í Sameiginlegu viðbragðssveitinni (JEF) þar sem þeir ásamt Bretum eiga í nánu samstarfi við Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin. Áherslur okkar í öryggis- og varnarmálum fara saman og það felst mikill styrkur í því að njóta skilnings bandamanna í NATO á stöðu okkar,” sagði forsætisráðherra eftir fundinn þar sem Evrópustefna ríkisstjórnarinnar og tvíhliða samstarf voru einnig til umræðu.