Utanríkisráðherra Bretlands í heimsókn á Íslandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og David Lammy, utanríkisráðherra Bretlands, áttu tvíhliða fund á öryggissvæðinu í Keflavík í dag. Breski ráðherrann kom í stutta vinnuheimsókn til Íslands ásamt sendinefnd og yfirgaf landið samdægurs. Um var að ræða fyrstu heimsókn utanríkisráðherra Bretlands til landsins síðan Jack Straw, þáverandi utanríkisráðherra, heimsótti Ísland heim í tengslum við vorfund Atlantshafsbandalagsins sem fram fór hérlendis árið 2002.
Á fundi ráðherranna í dag var lögð áhersla á öryggis- og varnarmál og náið samstarf vinaþjóðanna í þeim efnum. Auk þess voru tvíhliða samskipti ríkjanna, samskipti þeirra við Evrópusambandið, málefni Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu, norðurslóðir og staðan á Gaza sömuleiðis til umræðu.
„Það var afar ánægjulegt að taka á móti breska starfsbróður mínum til Íslands eftir að hafa nýverið boðið honum í heimsókn. Hann var ekki lengi að svara kallinu og gafst okkur því kærkomið tækifæri til að rækta hið góða samband sem ríkir milli þjóðanna. Við stilltum saman strengi í mikilvægum málum, ekki síst er lýtur að öryggis- og varnarmálum á norðurslóðum, í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Haag í næsta mánuði,“ segir Þorgerður Katrín. „Mér fannst líka gott að finna samhljóm í málefnum Úkraínu og Palestínu. Við vorum sammála um mikilvægi samstöðu þjóða til að stöðva hörmungarnar.”
Á meðan dvöl breska utanríkisráðherrans stóð á Íslandi kynnti hann sér starfsemina á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og heimsótti liðsmenn bandaríska flotans sem þar dvelja vegna kafbátaeftirlits Atlantshafsbandalagsins, sem og sveit tékkneska flughersins sem nú sinnir loftrýmisgæslu bandalagsins við Ísland. Dagskrá ráðherrans lauk svo á yfirlitsflugi með þyrlu Landhelgisgæslunnar yfir Grindavík og eldsumbrotasvæðið á Reykjanesskaga.