Hoppa yfir valmynd
30. maí 2025 Utanríkisráðuneytið

Aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO tekur sæti í stjórn GRÓ

Dr. Lidia Brito, aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO fyrir náttúruvísindi, tók nýverið sæti í stjórn GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu og sótti Ísland heim í síðustu viku. Hún flutti ávarp við útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ og hitti nemendur Landgræðsluskóla GRÓ sem og forstöðumenn allra GRÓ skólanna fjögurra. Þá fundaði hún með Martin Eyjólfssyni ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, auk þess að sækja 30. stjórnarfund GRÓ.

Á fundi með ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins var mikilvægi starfs UNESCO fyrir sjálfbæran og friðsaman heim til umræðu, sem og starf GRÓ skólanna sem starfa undir merkjum stofnunarinnar. Í tilefni af heimsókn Brito til landsins komu stjórn GRÓ og forstöðumenn skólanna fjögurra einnig saman til að ræða aukið samstarf GRÓ og UNESCO.

Eins og áður segir var Brito viðstödd útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ þar sem 23 nemendur frá fjórtán löndum útskrifuðust að þessu sinni, en þar með eru nemendur skólans orðnir rúmlega 500 talsins. Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins færði útskriftarhópnum kveðju Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og undirstrikaði mikilvægi íslensk sjávarútvegs fyrir þróun á Ísland á síðustu öld og mikilvægi þess að tryggja sjálfbæra nýtingu hafs og vatna. 

Mikilvægt að nýta þekkinguna heima fyrir

Í ræðu sinni dró Brito fram að elja og árangur útskriftarnemendanna á síðustu sex mánuðum staðfesti heit þeirra um að auka ekki aðeins sína eigin þekkingu, heldur einnig til að efla hag allra með heilbrigðu hafi. Þar vísaði hún til áratugar hafvísinda fyrir sjálfbæra þróun sem milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna (IOC UNESCO) leiðir. „Með því að ljúka þjálfun ykkar hér eru þið einstaklega vel búin til að takast á við helsta markmið áratugarins, að afla þeirrar vísindalegu þekkingar sem er nauðsynleg til að tryggja hafið sem við viljum,“ sagði Brito í ræðu sinni. „Megi framtíð ykkar verða vörðuð tilgangi, þrautseigju og von, sem og þeirri þekkingu sem þið takið með ykkur héðan frá Íslandi. Megi áhrif af starfi ykkar berast sem víðast, yfir úthöfin sem tengja okkur, og færa varanlegan ávinning fyrir þjóðir heimsins og jörðina.“

Brito heimsótti jafnframt Landgræðsluskóla GRÓ þar sem nú stunda 23 sérfræðingar frá Afríku og Asíu nám. Þar sögðu nemendur skólans henni frá því hvernig þekkingin og reynslan sem þau hljóta í náminu nýtist þeim við endurheimt vistkerfa og til að takast á við áskoranir á sviði landgræðslu og umhverfismála heima fyrir.

Fjöldi útskrifaðra nemenda GRÓ nálgast tvö þúsund

Þá má geta þess að daginn áður en Brito heimsótti Ísland heim útskrifaði Jafnréttisskóli GRÓ sinn 17. nemendahóp. Þar var um að ræða 26 nemendur frá 16 löndum, stærsta nemendahóp Jafnréttisskólans frá upphafi. Í fyrsta skipti voru einstaklingar frá Úkraínu meðal nemenda. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra flutti ávarp af þessu tilefni, ásamt Ólöfu Garðarsdóttur forseta Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, þar sem skólinn er starfræktur, og Irmu Erlingsdóttur forstöðumanni skólans.

Að loknum þessum tveimur útskriftum er heildarfjöldi útskrifaðra nemenda GRÓ skólanna nú kominn upp í 1.816, en þar að auki hafa 111 útskrifaðir nemendur lokið meistaranámi á styrkveitingu frá GRÓ og 24 doktorsprófi. Þá hafa hátt í sex þúsund nemendur lokið styttri námskeiðum á vegum GRÓ skólanna fjögurra í samstarfslöndum þeirra.

 

  • Dr. Lidia Brito flytur ávarp við útskrift nemenda hjá Sjávarútvegsskóla GRÓ. - mynd
  • Dr. Lidia Brito ásamt útskriftarhópi Sjávarútvegsskóla GRÓ og aðstandendum námsins. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta