Föstudagspóstur 30. maí 2025
Heil og sæl.
Við hefjum yfirferðina á málefnum tengdum Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra en hún tók í vikunni á móti David Lammy, starfsbróður sínum frá Bretlandi. Um var að ræða fyrstu heimsókn bresks utanríkisráðherra hingað til lands í 23 ár. Á fundi ráðherranna var lögð áhersla á öryggis- og varnarmál og náið samstarf vinaþjóðanna í þeim efnum. Auk þess voru tvíhliða samskipti ríkjanna, samskipti þeirra við Evrópusambandið, málefni Atlantshafsbandalagsins og Úkraínu, norðurslóðir og staðan á Gaza sömuleiðis til umræðu.
Þá sótti Þorgerður Katrín fund um neyðarástandið á Gaza og hina svokölluðu tveggja ríkja lausn. Fundurinn fór fram í Madríd en hann sóttu fulltrúar nokkurra Evrópuríkja, Mið-Austurlanda og S-Ameríkuríkja. Fram kom í máli ráðherra að stóru ríkin beri sérstaka ábyrgð. Þau geti ekki talað um tveggja ríkja lausn nema þau viðurkenni bæði ríkin – Ísrael og Palestínu.
Þá gerði hún árásir Rússa á Úkraínu að umfjöllunarefni í færslu á X og sagði að grípa þyrfti til frekari refsiaðgerða og aukins stuðnings við Úkraínu fari svo að Rússar haldi áfram að sýna lítinn sem engan friðarvilja.2/… and to work towards a two state solution, taking into account the necessary security guarantees needed for both Israel and Palestine to live side by side in peace and stability.
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) May 25, 2025
Instead of a peace memorandum Russia sends missiles and drones to terrorize and kill Ukraine’s civilian population. Instead of accepting an unconditional ceasefire Russia delays, distracts and defies. More sanctions on Russia and more support for Ukraine is needed without delay. https://t.co/SOPvuhJeld
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) May 25, 2025
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, var stödd í Japan ásamt íslenskri sendinefnd í vikunni en þar heimsótti hún norræna skálann á heimssýningunni í Osaka og tók þar þátt í sérstökum þjóðardegi tileinkuðum Íslandi. Myndir úr heimsókninni má sjá hér. Þá tók hún þátt í fjölbreyttri dagskrá í Tókýó þar sem hún hitti hún meðal annars Japanskeisara og forsætisráðherrann Shigeru Ishiba.
Honoured to witness President Halla Tómasdóttir confer the Order of the Falcon on Yoko Kamikawa and Atsushi Sunami at our Embassy in Tokyo. Their leadership has greatly strengthened Iceland–Japan ties in gender equality, Arctic cooperation, and sustainability. 🇮🇸🇯🇵 https://t.co/a45S4Yu3e9
— Stefan H Johannesson (@stefanhaukurj) May 28, 2025
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í vikunni fund með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, í Brussel. Þar naut hún liðsinnis Jörundar Valtýssonar fastafulltrúa og hans fólks í fastanefnd Íslands gagnvart bandalaginu.
Delighted to welcome 🇮🇸 Prime Minister @KristrunFrosta to #NATO HQ. Great meeting with @SecGenNATO on the road to the Hague Summit. Plenty to talk about, including the war in #Ukraine, security in the #Arctic and 🇮🇸 valued contributions to the Alliance. pic.twitter.com/rw5SwKlnHi
— Jorundur Valtysson 🇮🇸 (@jvaltysson) May 28, 2025
Dr. Lidia Brito, aðstoðarframkvæmdastjóri UNESCO fyrir náttúruvísindi, tók nýverið sæti í stjórn GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu og sótti Ísland heim í síðustu viku. Hún flutti ávarp við útskrift Sjávarútvegsskóla GRÓ og hitti nemendur Landgræðsluskóla GRÓ sem og forstöðumenn allra GRÓ skólanna fjögurra. Þá fundaði hún með Martin Eyjólfssyni, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, auk þess að sækja 30. stjórnarfund GRÓ.
Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman atriði sem vert er að hafa í huga áður en haldið er utan. Ert þú ferðaklár?
Sendiráð Íslands í Kampala hefur afhent völdum heilbrigðisstofnunum í Úganda mikilvæg lækningatæki og búnað til meðferðar á konum sem þjást af fæðingingarfistli. Áfanginn er liður í verkefni sem Ísland styður í gegnum Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) en markmið þess er að vinna gegn fæðingarfistli og styðja konur sem þjást af þeim sökum til að fóta sig á ný í samfélaginu.
Í vikunni var undirritað samkomulag milli EES/EFTA-ríkjanna (Íslands, Liechteinsteins og Noregs) annars vegar og Eistlands hins vegar um fyrirkomulag nýs framkvæmdatímabils Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028. Harald Aspelund, sendiherra Íslands gagnvart Eistlandi, skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd Íslands.
Fulltrúar utanríkisráðuneytisins heimsóttu Úkraínu í síðastliðinni viku þar sem þau áttu fundi með stjórnvöldum og samstarfsaðilum og ræddu við fulltrúa ráðuneyta, alþjóðastofnana, félagasamtaka, hugveitna og heimafólk um stöðu mála nú þegar þrjú ár og þrír mánuðir eru liðnir frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu. Á fundum með úkraínskum stjórnvöldum, þar á meðal með fulltrúa utanríkisráðuneytisins, var stuðningur íslenskra stjórnvalda við uppbyggingu í Úkraínu áréttaður, en áhersla hefur verið lögð á að óskir og þarfir Úkraínu séu þar í fyrirrúmi auk málefnasviða þar sem Ísland hefur sérstaka þekkingu og reynslu fram að færa.
Sendiherrahjónin í Helsinki, þau Harald Aspelund og Ásthildur Jónsdóttir, tóku á móti stórum hópi frá Oddfellow á ferð þeirra til Finnlands um síðustu helgi. Hópurinn fékk kynningu á starfsemi sendiráðsins og leiðsögn um sýninguna, Timely, sem stendur nú yfir í Gallerie Käytävä.
Þau hjónin heimsóttu á dögunum fjölskyldufyrirtækið Invest Ensto sem sérhæfir sig í sjálfbærri raforku.
Þá hitti Harald norræna kollega í Tallinn en þeir áttu meðal annars fund með Andres Sutt, orkumálaráðherra Eistlands, yfir hádegisverði.
Vakin var athygli á skólamáltíðar- og loftslagsverkefni Íslands og Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (World Food Program – WFP) en það skilar góðum árangri. Stofnunin er samstarfsaðili Íslands í heimaræktuðum skólamáltíðum í tvíhliða samstarfslöndunum Malaví og Síerra Leóne. Þá leiðir Ísland ásamt öðrum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna svokallað Skólamáltíðarbandalag. Ný og betri skólaeldhús sem fjármögnuð eru af íslensku þróunarfé hafa verið sett upp í 65 grunnskólum á Karamoja-svæðinu í Úganda. Alls sækja 67.002 börn skólana. Verkefnið snýr sérstaklega að skólamáltíðum, umhverfis- og loftslagsmálum auk þess að styðja við markmið um bætta menntun, námsumhverfi og næringu barna. Eldiviðarnotkun hefur einnig dregist saman um meira en helming með tilkomu nýrra orkusparandi eldavéla.
Dansk-Islandsk Samfund helt ársfund sinn í sendiherrabústaðnum í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Félagið var stofnað árið 1916 með það að markmiði að efla tengslin milli Íslands og Danmerkur. Í rúm 100 ár hefur félagið staðið fyrir áhugaverðri dagskrá fyrir félagsmenn sína með fyrirlestrum, umræðufundum, tónleikum og ýmsum menningarviðburðum. Í þetta sinn bauð dagskráin m.a. upp á tónlistaratriði og lék Helga Diljá Jörundsdóttir nemi í fiðluleik hjá Det Kgl. Danske Musikkonservatorium á fiðlu við undirleik Isabellu Rudner. Steen Lindholm formaður félagsins lék einnig nokkur lög undir fjöldasöng gesta.
Sendiráðið í Kaupmannahöfn stóð í síðustu viku fyrir vinnustofu í sendiráðsbústaðnum í samstarfi við hugbúnaðar- og nýsköpunarfyrirtækið Öldu, sem styður vinnustaði í að efla fjölbreytileika og inngildingu. Pétur Ásgeirsson sendiherra opnaði vinnustofuna með erindi um stöðu Íslands á sviði jafnréttismála, en að því loknu kynnti Þórey V. Proppé, framkvæmdastjóri og stofnandi Öldu, starfsemi fyrirtækisins fyrir leiðtogum danskra stórfyrirtækja. Fyrirtækin sem sóttu vinnustofuna vinna öll markvisst að innleiðingu fjölbreytileika, jafnréttis og inngildingar, en markmið fundarins var að opna á nýja leiðir til árangursríks samstarfs.
Sendiherrahjónin í Kaupmannahöfn, Pétur Ásgeirsson og Jóhanna Gunnarsdóttir, buðu í vikunni til tónleika í sendiherrabústaðnum að Fuglebakkevej. Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur steig þar á svið og flutti vel valin lög ásamt því að segja gestum frá tilurð verka sinna með einlægum og skemmtilegum frásögnum.
Starfsfólk sendiráðsins í Lilongwe tók á móti fulltrúum Go Fund a Girl Child-verkefnisins í vikunni. Þar hittu þau fyrir Prudence Chavula, framkvæmdastjóra verkefnisins, sem er nýsnúin aftur til Malaví eftir að hafa lokið við diplómanám við Jafnréttisskóla GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu á Íslandi.
Þá sótti starfsfólk sendiráðsins viðburð í tilefni alþjóðlegs baráttudags gegn fæðingarfistli. Athygli var vakin sömuleiðis vakin á umræddum degi hjá sendiráðinu í Freetown.
“@IcelandinSalone is proud to be supporting national efforts to eliminate fistula in Sierra Leone.”
— UNFPA Sierra Leone (@UNFPASierraleon) May 23, 2025
— Ásdís Bjarnadóttir
Head of Mission - Embassy of Iceland in Sierra Leone pic.twitter.com/qDcmz5IV3O
🧵1/3
— UNFPA Sierra Leone (@UNFPASierraleon) May 23, 2025
On Int’l Day to End Obstetric Fistula, @UNFPA joins CM @dsengeh, @mohs_sl, @IcelandinSalone, NGO partners, community leaders, & Fistula Champions to celebrate this important day under the theme: “Our Health, Our Rights: Shaping a Future Without Fistula.”✊🏽 pic.twitter.com/XBOwnR7Lq5
Hlynur Guðjónsson, sendiherra í Ottawa, sótti varnarmála-, öryggis- og tækniráðstefnuna CANSEC á dögunum. Þar hitti hann meðal annars George Robertson lávarð, fyrrverandi framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, og Gabrielius Landsbergis, fyrrverandi utanríkisráðherra Litáen.
Smáþjóðaleikarnir voru settir með pompi og prakt í Andorra í vikunni. Yfir 100 íslenskir íþróttamenn keppa á leikunum sem standa yfir til 31. maí. Andorra er eitt af umdæmislöndum sendiráðsins í París og var athygli vakin á leikunum á Facebook-síðu sendiráðsins.
Sendiráðið í Tókýó tók nýverið á móti myndlistarkonunni og rithöfundinum Rán Flygenring. Flutti hún fyrirlestur í sendiráðsbústaðnum um Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, fyrir hóp gesta.
Heildarfjöldi gesta sem lagt hafa leið sína í norræna skálann á heimssýningunni í Osaka er orðinn hærri en heildarfjöldi Íslendinga og var því fagnað í vikunni.
Hannes Heimisson, aðalræðismaður í Færeyjum, tók á móti þeim Hanna Torsdatter Limstrand, Sofie Richardsen og Charléne Margaux Linderhof, frá Noregi og Hollandi, en þær eru starfsnemar í Færeyjum. Þær vinna í Norðurlandahúsinu, Nora og Ocean Rainforest. Kynnti Hannes fyrir þeim helstu verkefni skrifstofunnar og samskipti Íslands og Færeyja.
Sendiráðið í Washington D.C. tók á móti Elizu Reid, fyrrverandi forsetafrú og rithöfundi, en hún kynnti þar nýútgefna skáldsögu sína, Death on the Island.
Norrænu sendiráðin í Peking stóðu fyrir jafnréttisviðburði í sendiráði Íslands þar sem áherslan var á samhengi kynjajafnréttis og hagsældar. Þetta er annar jafnréttisviðburðurinn sem sendiráðið í Peking stendur fyrir á árinu í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking og 30 ára afmæli sendiráðs Íslands í Peking. Húsfyllir var líkt og á fyrri viðburðinum. Frummælendur voru frá All China Women’s Federation og UN Women og tóku fulltrúar norrænu sendiráðanna og fyrirtækja þátt í pallborðsumræðum. Sjá nánar hér.Great to have @elizajreid in Washington DC last week promoting her new novel Death on the island @PressClubDC and at the 🇮🇸residence. pic.twitter.com/haxilDFL5c
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) May 29, 2025
The #Nordic 🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪 Embassies in 🇨🇳 jointly hosted a well attended and lively seminar on #GenderEquality as Driver for Economic Growth on the occasion of #Beijing+30 https://t.co/OgP5YgMO9W pic.twitter.com/EMrMkNm1T9
— Thorir Ibsen (@ThorirIbsen) May 29, 2025
Inga Dóra Pétursdóttir, staðgengill sendiherra í Peking, sótti formlega opnun WCIF kaupstefnunnar í Chengdu þar sem Össur, BioEffect og Ocean Mix kynntu vörur sínar með aðstoð sendiráðsins í Peking. Sjá hér.
Fleira var það ekki þessa vikuna — góða helgi!
Kveðja,
Upplýsingadeild.