Vegna umfjöllunar um hlutverk Vegagerðarinnar í tengslum við álestur á akstursmælum
Vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um hlutverk Vegagerðarinnar í tengslum við álestur á akstursmælum tekur ráðuneytið eftirfarandi fram:
Ekki er gert ráð fyrir auknu hlutverki Vegagerðarinnar í því frumvarpi um kílómetragjald á ökutæki sem liggur fyrir Alþingi, umfram það sem gildandi lög um olíugjald og kílómetragjald kveða á um. Í hlutverkinu felst álestur í undantekningartilvikum eingöngu vegna þungra ökutækja, til hagræðis ef langt er á næstu skoðunarstöð. Frumvarpið felur í sér minna umfang vegna skráningar en nú er, en þar er eingöngu gert ráð fyrir einum álestri á skoðunarstofu og síðan skráningu á Ísland.is, vegna þungra ökutækja í stað tveggja álestra áður hjá álestraraðila.
Í þessu ljósi var ekki talin þörf á sérstöku samráði við Vegagerðina, þar sem hlutverk stofnunarinnar er í raun það sama í frumvarpinu um kílómetragjald og í núgildandi lögum um olíugjald og kílómetragjald, þ.e. að getað aðstoðað eigendur þungra ökutækja með skráningu þegar langt er til næstu skoðunarstöðvar, t.d. samhliða vegaeftirliti. Verkefnastofa um samgöngugjöld hefur kynnt fyrirkomulag vegna gjaldþyngdar ökutækja fyrir Samgöngustofu, Skattinum og Vegagerðinni, þar sem m.a. var komið inn á þá undantekningu að Vegagerðin geti lesið af akstursmælum þungra ökutækja.
Ítarlega hefur verið fjallað um frumvarpið í samráði á öllum stigum, auk þess sem um endurflutt mál er að ræða. Engar athugasemdir vegna álesturs bárust frá Vegagerðinni vegna frumvarpsins á síðasta þingi eða þegar málið var í samráðsgátt stjórnvalda á sínum tíma.