Hoppa yfir valmynd
2. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Framkvæmdir í gangi víða um land vegna ofanflóðavarna

Brattar varnarkeilur ofan við háan, brattan þvergarð, ofan byggðar í Bolungarvík. Ljósmynd: KMH, 23. maí 2024. - mynd

Framkvæmdir eru nú í gangi víða um land vegna ofanflóðavarna og verður sumarið nýtt vel til uppbyggingar varnarmannvirkja. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára er gert ráð fyrir 900 milljón kr. aukningu til málaflokksins í þeim tilgangi að hraða brýnustu verkefnum og framkvæmt verður fyrir tæplega 4 milljarða kr. á þessu ári.

Framkvæmdir við ofanflóðavarnir eru langt komnar og hefur verið lokið við að reisa um 70% þeirra varna sem nauðsynlegar eru til að verja íbúðarhús á fimmtán þéttbýlisstöðum víða um land.

Á Bíldudal var nýlega boðinn út lokaáfangi í uppbyggingu varna fyrir byggðina sem felst í uppbyggingu á bröttum varnargörðum ofan byggðar, vestan Búðargils. Miðað er við að þeim framkvæmdum ljúki árið 2028.

Á Patreksfirði verður unnið að því að ljúka við gerð bráðavarna í og við Stekkjagil. Bráðavarnirnar eru hluti af lokavörnum fyrir byggðina við gilið og er ætlað að draga úr hættu vegna krapaflóða í næstu húsum við farveginn. Á Patreksfirði stendur jafnframt til að ljúka við frágang varna ofan hafnar (Hóla, Mýra og Urðargötu).

Unnið er að endurbótum á varnargörðum á Flateyri, sem felast í því að reisa þrjár raðir af bröttum varnarkeilum ofan núverandi leiðigarða, svo koma megi í veg fyrir að flóð berist yfir garðana, eins og raunin varð í janúar 2020. Jafnframt verður hafnarsvæðið varið, þar sem garðarnir auka hættu á því svæði.

: Uppbygging varnargarða undir Bjólfi á Seyðisfirði, haustið 2024. Verktaki: Héraðsverk. Ljósmynd: KMH

Uppbygging varnargarða undir Bjólfi á Seyðisfirði, haustið 2024. Ljósmynd: KMH

Stefnt er að því að vinna lagfæringar á farvegi krapaflóða eftir Bæjargili í Ólafsvík á Snæfellsnesi í sumar. Þá eru framkvæmdir við snjóflóðavarnargarða undir Bjólfi á Seyðisfirði á lokastigi og gert ráð fyrir að verkframkvæmdum ljúki þar að mestu á næsta ári.

Í Neskaupstað er unnið að byggingu garða og keilna undir Nes- og Bakkagiljum auk þess sem endurbætur eru að hefjast á stoðvirkjum í upptakasvæði Drangagils. Með þessum framkvæmdum verður uppbyggingu varna ofan byggðar í Neskaupstað að mestu lokið.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Snjóflóðavarnargarðar hafa ítrekað sannað gildi sitt og þess vegna leggur ný ríkisstjórn áherslu á að hraða brýnustu verkefnum með auknum fjárveitingum í fjármálaáætlun. Næsta haust mun ég mæla fyrir frumvarpi á Alþingi sem er ætlað að styrkja umgjörð ofanflóðavarna og sporna gegn dvöl fólks utan leyfilegs nýtingartíma í húseignum á hættusvæðum. Það er óþolandi og óboðlegt að fólk setji sjálft sig og viðbragðsaðila í hættu með slíkri hegðun, og við þessu þarf að bregðast.”

Snjóflóðshrönn ofan við efstu keilu undir Tröllagili í Neskaupstað eftir snjóflóð sem féll á keilurnar í apríl 2023. Ljósmynd: Veðurstofa Íslands, 12. apríl 2023.

Snjóflóðshrönn ofan við efstu keilu undir Tröllagili í Neskaupstað eftir snjóflóð sem féll á keilurnar í apríl 2023. Ljósmynd: Veðurstofa Íslands, 12. apríl 2023.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta