Uppfærð landsskýrsla um innleiðingu Árósarsamningsins í samráðsgátt
Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að uppfærðri skýrslu um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi. Skýrslan verður fjórða skýrsla Íslands um innleiðingu samningsins. Hún verður unnin í samráði við umhverfisverndarsamtök og tekur ráðuneytið einnig við öllum ábendingum frá almenningi um efni hennar.
Ísland fullgilti í október 2011 Árósasamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Auk aðildarríkjaráðstefnu sem og ríkjafundum sem haldnir eru árlega eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð.
Aðildarríkjum ber að skila aðildarríkjaskýrslu til skrifstofu samningsins á fjögurra ára fresti þar sem farið er yfir stöðu innleiðingarákvæða samningsins í viðkomandi ríki og eru skýrslurnar teknar til umræðu á næstu aðildaríkjaráðstefnu samningsins. Mikilvægt er að öll sjónarmið komi fram í skýrslunni sem nú er unnið að, bæði sjónarmið stjórnvalda, almennings og félagasamtaka sem nýta sér þann rétt sem aðild að samningnum veitir.
Ráðuneytið hvetur alla þá sem áhuga hafa að koma með ábendingar eða annað sem varðar væntanlega skýrslu. Tekið verður við athugasemdum og ábendingum til og með 30. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Trausti Ágúst Hermannsson, [email protected]
Drög að uppfærðri stöðuskýrslu um innleiðingu Árósarsamningsins