Hoppa yfir valmynd
3. júní 2025 Dómsmálaráðuneytið

Áform um breytingu á jafnlaunavottunarkerfinu í samráðsgátt

Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt áform um frumvarp til laga inn í samráðsgátt er varðar breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020 (jafnlaunakerfi).

Skylda til innleiðingar jafnlaunavottunar var lögfest árið 2017. Nú þegar nokkur ár eru liðin frá innleiðingunni er ástæða til að endurskoða regluverkið með tilliti til reynslunnar og ábendinga sem fram hafa komið.

„Markmiðið er að einfalda ferlið, gera það skilvirkara og draga úr kostnaði við framkvæmd þess fyrir fyrirtæki og stofnanir,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála.

Áformin sem kynnt eru byggja meðal annars á tillögum starfshóps forsætisráðherra um hagræðingu í ríkisrekstri um að létta á jafnlaunavottun og hækka stærðarmörk, sjá hér. Tilskipun Evrópusambandsins 2023/970 um launagagnsæi verður auk þess höfð til hliðsjónar.

Áfram verður fyrirtækjum og stofnunum af tiltekinni stærð skylt að hafa jafnlaunakerfi sem tryggir málefnaleg sjónarmið um launasetningu og felur ekki í sér kynbundinn launamun.

Jafnréttismál hafa heyrt undir dómsmálaráðuneytið frá 15. mars 2025 og síðan þá hefur vinna við að undirbúa endurskoðun gildandi laga og reglna um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana átt sér stað innan ráðuneytisins.

Lesa má áform um frumvarp til laga um breytingu á jafnlaunavottun hér í samráðsgátt.

Umsagnarfrestur er til og með 7. júlí nk.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta