Hagsmunir neytenda hafðir að leiðarljósi
Öflugri neytendavernd er á meðal markmiða í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins og er skipan teymisins í samræmi við það markmið. Verkefni teymisins er að vakta og greina þróun vísitölu neysluverðs, undirliggjandi áhrifaþætti og miðla reglulega upplýsingum um þá þætti. Teymið starfar með hagsmuni neytenda að leiðarljósi og er einnig hluti af aðgerðum stjórnvalda gegn verðbólgu og verðlagshækkunum umfram almenna þróun.
Út frá neytendavernd og verðlagseftirliti er brýnt að stjórnvöld fylgist náið með þróun vísitölu neysluverðs, m.a. gagnvart þróun íslensku krónunnar, og hafi tól og tæki til að greina ástæður að baki hækkana á vísitölunni og undirliggjandi áhrifaþætti.
Þróun matvöruverðs hefur hér mikið að segja, sem og önnur vara og þjónusta. Nýverið lagði atvinnuvegaráðherra fram minnisblað í ríkisstjórn um verðlagseftirlit og hlut matvöruverðs í hækkun á vísitölu neysluverðs þar sem boðuð var frekari eftirfylgni og vöktun.
Ráðuneytið hefur þegar óskað eftir upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu, Hagstofunni og ASÍ um fyrrgreinda þætti. Einnig er stefnt að auknu samstarfi við Rannsóknasetur verslunarinnar varðandi hagrænar rannsóknir.
Náið samráð stjórnvalda við verðlagseftirlit ASÍ er jafnframt mikilvægt. Frá árinu 2023 hefur verðlagseftirlit ASÍ unnið að víðtæku umbótastarfi með það að markmiði bæta verðlagseftirlit og miðlun verðupplýsinga og hafa stjórnvöld hafa veitt því verkefni stuðning. við ýmis verkefni verðlagseftirlits ASÍ á þessu sviði.
„Þetta er í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar á öfluga neytendavernd og virka samkeppni segir atvinnuvegaráðherra. „Þetta teymi mun gegna lykilhlutverki í þeirri vinnu og vinna náið með einstaka stofnunum á þessu sviði.“