Hoppa yfir valmynd
3. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Heimsókn ráðherra í Norræna húsið

Sabina Westerholm og Logi Einarsson á bókasafni Norræna hússins sem býður eingöngu upp á bókmenntir á Norðurlandamálum eftir norræna höfunda. - mynd

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, heimsótti nýlega Norræna húsið í Reykjavík. Þar átti hann fund með Sabinu Westerholm forstjóra Norræna hússins og kynnti sér þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer fram, húsið sjálft og sögu þess.

Hlutverk Norræna hússins er að miðla norrænni menningu til Íslands og íslenskri menningu til hinna Norðurlandanna. Það er gert með margvíslegum hætti og er starfsemin fjölbreytt. Þar er t.d. starfrækt bókasafn og margvíslegt menningar- og barnastarf. Einnig er Info Norden, upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, starfrækt í húsinu, sem veitir upplýsingar til fólks sem vill flytja, vinna, stunda nám, leita styrkja eða hefja rekstur í öðru landi á Norðurlöndum. Þá annast húsið umsýslu bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og fleira.

Norræna húsið í Reykjavík (NOREY) er ein af tólf stofnunum Norrænu ráðherranefndarinnar sem dreifðar eru um Norðurlönd og eina norræna stofnunin sem er staðsett á Íslandi. Það varð til við sameiginlegt framtak norrænu ríkisstjórnanna árið 1965 og er teiknað af hinum heimsfræga finnska arkitekt Alvar Aalto. Húsið var vígt árið 1968 og hefur frá upphafi verið rekið af fjárlögum Norrænu ráðherranefndarinnar (NMR).

„Það var mjög áhugavert fyrir mig, bæði sem ráðherra menningarmála og sem samstarfsráðherra Norðurlanda, að heimsækja Norræna húsið í Reykjavík og kynnast þeirri fjölbreyttu og mikilvægu starfsemi sem þar fer fram. Hlutverk hússins er ekki einungis þýðingarmikið fyrir norrænt menningarsamstarf heldur einnig fyrir norrænt samstarf í heild sinni, sem er okkur Íslendingum mikilvægt. Þá erum við einnig lánsöm að hafa þessa fallegu og merkilegu byggingu eftir heimsfrægan arkitekt á Íslandi sem er bæði fallegt og mikilvægt kennileiti,“ segir Logi Einarsson. 

Sterkasta stúlka heims og ein frægasta sögupersóna norræna barnabóka Lína Langsokkur fagnar 80 ára afmæli í ár og að þeim sökum verður henni gert hátt undir höfði víða um heim, meðal annars í Þjóðleikhúsinu sem frumsýnir í september sanefnd verk.Sterkasta stúlka heims og ein frægasta sögupersóna norræna barnabóka Lína Langsokkur fagnar 80 ára afmæli í ár og að þeim sökum verður henni gert hátt undir höfði víða um heim, meðal annars í Þjóðleikhúsinu sem frumsýnir í september leikrit um Línu langsokk. 

  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta