Hoppa yfir valmynd
3. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Plássið í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns staðfest sem verndarsvæði í byggð

Vopnafjarðarkirkja - myndHugi Ólafsson

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest Plássið í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns sem verndarsvæði í byggð að fenginni tillögu Vopnafjarðarhrepps og er verndarsvæðið um 3,7 hektarar að stærð.

Plássið í miðbæ Vopnafjarðarkauptúns nær um um elsta hluta byggðar bæjarins og felst sérstaða þess í menningarsögulegum arfi gamalla húsa og fjölda fornminja sem tengjast sögu atvinnulífs, verslunar, sjósóknar og þróun þéttbýlis.  

Innan verndarsvæðisins er að finna þyrpingu 16 ólíkra húsa frá ýmsum tímabilum. Þá er byggingarlína húsa við Kolbeinsgötu, elstu götuna í kauptúninu, samfelld og hefur varðveist til dagsins í dag. Fjögur af elstu húsum verndarsvæðisins – Vopnafjarðarkirkja sem byggð var á árunum  1902-1903, Framtíðin (byggt um 1898), Kaupvangur (1884) og Guðjohnsenshús (1880) - hafa verið endurgerð.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Það er mér mikil ánægja að staðfesta tillögu sveitarfélagsins að gera sögulega heild húsbygginganna að verndarsvæði. Bæjarstæðið er fallegt og byggðin í kringum miðbæinn hefur mikið verndargildi. Heimamenn hafa hlúð vel að byggingararfinum og hafa sýnt mikinn metnað í að varðveita svipmót svæðisins.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta