Breytir byggingarreglugerð og setur inn nýtt ákvæði um 25 metra hámarksfjarlægð frá bílastæði hreyfihamlaðra
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur breytt byggingarreglugerð nr. 112/2012 og sett inn nýtt ákvæði um 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra. Slík bílastæði skulu nú vera sem næst aðalinngangi bygginga og ekki fjær þeim en 25 metrar.
„Áður leyfði reglugerðin framkvæmdaaðilum að staðsetja bílastæði fyrir hreyfihamlaða yst á bílastæðum og sem lengst frá inngangi. En ekki lengur,“ segir Inga Sæland.
„Nauðsynlegt var að grípa inn í og breyta reglugerðinni. Reglan um 25 metrana gildir alls staðar á Norðurlöndunum og auðvitað á það að vera eins á Íslandi. Gleymum því aldrei að samfélagið okkar er fyrir okkur öll. Til að svo megi verða þurfum við að tryggja aðgengi fyrir alla.“
Ofangreint ákvæði um 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra var fellt brott úr reglugerðinni árið 2016 en hefur nú verið sett inn að nýju.