Hoppa yfir valmynd
4. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til nýrra heildarlaga um loftslagsmál í Samráðsgátt

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra - myndSveinn Speight

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um loftslagsmál sem felur í sér stórbætta umgjörð í stjórnsýslu loftslagsmála á Íslandi.

Megináherslur frumvarpsins eru:

  • Að tryggja skilvirkari innleiðingu loftslagsaðgerða og efla stjórnsýslu loftslagsmála
  • Binda í lög kröfuna um réttlát umskipti
  • Að skýra markmiðasetningu stjórnvalda, m.a. með því að tryggja skammtímamarkmið til viðbótar við langtímamarkmið í loftslagsmálum 
  • Að Ísland setji sér loftslagsstefnu með tölulegum markmiðum til 25 ára og framtíðarsýn stjórnvalda um loftslagsvænna samfélag
  • Að treysta stöðu vísindalegra forsendna fyrir aðgerðum og vísindalegrar rýni á stefnu stjórnvalda
  • Að íslenskt samfélag og lífríki aðlagist og búi að þoli gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga 

Samkvæmt frumvarpsdrögunum verður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra falið að láta vinna langtímastefnu í loftslagsmálum sem verði endurskoðuð ekki sjaldnar en á fimm ára fresti og innihaldi töluleg markmið stjórnvalda um samdrátt í losun til næstu 25 ára. Í stefnunni verði enn fremur skilgreind millimarkmið fyrir hvert fimm ára tímabil sem lýsi stefnu og markmiðum ríkisins í loftslagsmálum, sem og skammtímamarkmið sem eru árleg markmið fyrstu fimm ár stefnunnar.

Þá láti ráðherra vinna loftslagsáætlanir, annars vegar aðlögunaráætlun vegna áhrifa loftslagsbreytinga á Íslandi sem gildi til fimm ára í senn og hins vegar aðgerðaáætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og aukna bindingu kolefnis. Jafnframt er ráðherra gert að svara ábendingum loftslagsráðs og gefa þinginu árlega skýrslu um framgang loftslagsaðgerða og markmið stjórnvalda.

Í stað verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða mun samhæfingarhópur loftslagsaðgerða gegna lykilhlutverki og tryggja samræmingu milli  ráðuneyta og stjórnvalda. Innleiðing aðgerða verði efld innan stjórnsýslunnar með tilkomu nýrra framkvæmdaráða sem vinna þvert á ráðuneyti að loftslagsaðgerðum og í góðu samstarfi við viðeigandi hagaðila.  

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Með þessu sköpum við umgjörð til þess að hrinda loftslagsaðgerðum hratt og vel í framkvæmd. Loftslagsváin kallar á skilvirka stjórnsýslu og skýra sýn stjórnvalda. Stóra verkefnið er að rjúfa fylgnina milli hagvaxtar og losunar gróðurhúsalofttegunda, en til þess þarf aukna festu í stjórnsýslu loftslagsmála. Með nýjum heildarlögum um loftslagsmál aukum við vægi vísindalegrar nálgunar, skerpum á verkaskiptingu og eftirfylgni loftslagsaðgerða, skýrum betur ábyrgð ráðherra og bindum í lög kröfuna um réttlát umskipti þannig að loftslagsaðgerðir ýti aldrei undir ójöfnuð heldur þvert á móti.”

Frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 29. ágúst nk., en á þeim tíma mun ráðuneytið jafnframt eiga samtöl og samráð á breiðum grunni.

Frumvarp til laga um loftslagsmál

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta