Handhafabreytingar á starfsleyfi án auglýsingar, rýmri frestur vegna námskeiða sem þau sem stunda húðrof sækja o.fl.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um hollustuhætti, nr. 903/2024. Breytingin snýr að námskeiðum fyrir þá sem stunda húðrof, auk þess sem skýrt er tekið fram að breyting á rekstraraðila starfsleyfis krefst ekki auglýsingar.
Un er að ræða breytingu sem eykur skilvirkni og einfaldar regluumhverfi rekstraraðila sem falla undir reglugerðina. Nánar tiltekið er breytingin sú að þegar nýr rekstraraðili tekur við starfsleyfisskyldum rekstri, sem heyrir undir reglugerðina, sé ekki gerð krafa um að útgefandi leyfis auglýsi drög að starfsleyfi. Með þessu er skýrt að ekki er krafist nýs fjögurra vikna auglýsingatímabils þegar rekstraraðili tekur við rekstri sem er þegar í fullum gangi.
Þá er lagt til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að viðurkenna námskeið sem þau sem stunda húðrof hafa sótt, þ.e. önnur námskeið en þau sem reglugerðin kveður sérstaklega á um, krafa verði gerð um endurmenntun þeirra sem stunda húðrof á fimm ára fresti, og að þeir sem starfa við húðrof þurfi ekki að framvísa skírteini um að hafa staðist hæfnispróf fyrr en 1. janúar 2026.
Markmið reglna um hollustuhætti er m.a. að tryggja öruggt nærumhverfi með áherslu á að vernda og viðhalda lýðheilsu og heilnæmum lífsskilyrðum. Allar tillögur að breytingum á reglugerðinni eru nánar raktar inn á vef samráðsgáttar.
Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 24. júní.
Breyting á reglugerð um hollustuhætti