Rúmlega 474 milljónum úthlutað úr Matvælasjóði
„Matvælasjóður sem nú úthluta í sjötta skipti hefur sannað mikilvægi sitt við að efla nýsköpun í matvælaframleiðslu,” segir atvinnuvegaráðherra „Frjó hugsun og leiðir til betri hráefnisnýtingar eru einkennandi fyrir margar umsóknir í ár og það er ánægjulegt að geta veitt mörgum þeirra brautargengi með úthlutun úr sjóðnum.“
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.
Svarbréf hafa þegar verið send umsækjendum í gegnum Ísland.is og eru aðgengileg umsækjendum í umsóknarkerfi.
Nánari upplýsingar um úthlutun sjóðsins má finna hér.