Stækkaðu heiminn: Umsóknarfrestur um háskólanám rennur út á morgun
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið stendur fyrir átakinu Stækkaðu heiminn með háskólanámi í annað sinn með það að markmiði að hvetja ungt fólk til að skrá sig í háskólanám.
Á morgun, fimmtudaginn 5. júní, rennur út umsóknarfrestur í háskólum landsins (að Listaháskólanum undanskildum) og er því enn tími til að sækja um í háskólanám sem hefst í haust. Sjá nánar um framboð náms á haskolanam.is
Möguleikarnir sem ungt fólk stendur frammi fyrir í dag hafa aldrei verið fleiri. Þótt það feli í sér fjölbreytt og spennandi tækifæri getur úrvalið einnig reynst yfirþyrmandi og orðið til þess að ákvörðunum um nám sé frestað. Stækkaðu heiminn - átakið miðar að því að hvetja tilvonandi námsmenn til að nýta tækifærið, prófa sig áfram, taka frumkvæði og nálgast þá mikilvægu spurningu: Hver eru mín áhugasvið og hvar liggja mínir styrkleikar?
„Ég var búinn að velta fyrir mér ýmsu námi, til dæmis myndlist og hagfræði, áður en ég sótti um í arkitektúr – og komst ekki inn. Það var þó mikilvægur lærdómur fólginn í því og ég ákvað að sækja aftur um ári síðar, orðinn einbeittari í því hvert ég stefndi. Þannig að jafnvel þótt fólk komist ekki strax inn í draumanámið eða finni sig ekki á þeirri braut sem það velur upphaflega, þá er vegferðin hafin – og hún færir mann nær því að virkja eigin hæfileika og viljastyrk. Þú þarft nefnilega ekki að vita hvað þú ætlar að verða þegar þú verður stór til að skrá þig í háskólanám. Heimurinn stækkar með háskólanámi – þar lærir maður svo margt annað en fagið eitt og sér: eins og teymisvinnu, frumkvæði og fjölbreyttan hugsunarhátt. Hver sem þú verður á endanum, þá standa fleiri dyr opnar eftir háskólanám,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Ráðherra hvetur sem flesta til að kynna sér það fjölbreytta nám sem í boði er á haskolanam.is þar sem einnig má finna svör við algengum spurningum – meðal annars um inntökuskilyrði, kostnað og uppbyggingu fjarnáms.