Breyting á reglugerð um hávaða í samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um hávaða, nr. 724/2008. Breytingunni er ætlað að ná betur til ákveðinnar starfsemi, auk þess sem reglugerðin hefur verið endurskoðuð í samræmi við breyttar aðstæður.
Reglugerðarbreytingin byggir á tillögu sérfræðingahóps sem í áttu sæti sérfræðingar frá Umhverfisstofnun og heilbrigðiseftirliti. Við nánari vinnslu tillagnanna hefur ráðuneytið haft samráð við tiltekna hagaðila og m.a. tekið mið af sænskum reglum.
Markmið reglna um hávaða er að vernda heilsu manna fyrir skaðlegum áhrifum af völdum hávaða.
Lögð eru til ákvæði sem setja viðmiðunarmörk fyrir leyfilegan hávaða frá skotvöllum, framkvæmdum, samkomustöðum og sérstökum viðburðum, hávaða frá vindmyllum og frá akstursíþróttasvæðum.
Einnig gerir reglugerðarbreytingin ráð fyrir að heilbrigðisnefndir geti farið fram á greinargerð af hálfu rekstraraðila um hljóðvist húsnæðis, í samræmi við umfang og eðli starfsemi og möguleg grenndaráhrif. Þá verður heilbrigðisnefndum heimilt að krefja framkvæmda- eða rekstraraðila um hljóðmælingar, s.s. síritandi hljóðmæli, við framkvæmdir og starfsemi. Auk þess er uppfærð tilvísun í Staðalinn Hljóðvist – Flokkun íbúðarhúsnæðis og tiltekið að yfirbyggðar svalir uppfylli ekki skilyrði um hljóðláta hlið skv. flokki C í staðlinum.
Allar tillögur að breytingum á reglugerðinni eru nánar raktar inn á vef samráðsgáttar.
Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 30. júní nk.