Öryggi og varnir á norðurslóðum í brennidepli á árlegri ráðstefnu
Öryggi og varnir á norðurslóðum voru til umfjöllunar á árlegri ráðstefnu sem fram fór í Veröld – húsi Vigdísar gær en ráðstefnan er samstarfsverkefni kanadískra og íslenskra stjórnvalda og fræðasamfélags beggja ríkja.
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti opnunarávarp ráðstefnunnar og lagði áherslu á mikilvægi þess að efla samstarf norðurslóðaríkjanna sjö á sviði öryggis- og varnarmála andspænis breyttu öryggisumhverfi á norðurslóðum í skugga allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu.
Ráðstefnan var vel sótt af bæði íslenskum og kanadískum sérfræðingum. Umræður fóru fram í þremur pallborðsumræðum þar sem fjallað var um valdajafnvægi og stjórnmál á norðurslóðum, leit og björgun og löggæslu á hafsvæðum og stefnu Íslands og Kanada í norðurslóðamálum.
Þetta er í þriðja skiptið sem ráðstefnan fer fram en hún flakkar milli höfuðborga og er haldin í samstarfi sendiráðs Íslands í Ottawa, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Mobilizing Insights in Defence and Security (MINDS), Háskólans í Manitoba, sendiráðs Kanada í Reykjavík, North American and Arctic Defence and Security Network (NAADSN) og utanríkisráðuneytis Kanada.