Hoppa yfir valmynd
5. júní 2025

Ráðherrafundur OECD

Ráðherrafundur OECD var haldinn í París 3. - 4. júní sl.  Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sat fundinn fyrir Íslands hönd.

Yfirskrift fundarins var um leiðir til að tryggja sjálfbæra velmegun með alþjóðaviðskiptum, fjárfestingum og tækninýjungum.

Á fundinum var m.a. rætt um þróun alþjóðaviðskipta, þróunarsamvinnu, stafræna hagkerfið og gervigreind. Þá voru samskipti OECD við önnur ríki og ríkjahópa til umfjöllunar og m.a. samþykkt sérstök stefnumörkun í málefnum ríkja Suður-Ameríku og Karíbahafs.

Í tengslum við fundinn sótti fjármála- og efnahagsráðherra fund ACCTS ríkjahópsins um loftslagsbreytingar, viðskipti og sjálfbæra þróun, en í honum sitja auk Íslands Kosta Ríka, Nýja Sjáland og Sviss. Þá átti ráðherrann tvíhliða fundi með ráðherrum Eistlands, Nýja Sjálands og Kosta Ríka, auk funda með sérfræðingum OECD.
  • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, ásamt Todd McClay, viðskipta- og fjáfestingaráðherra Nýja-Sjálands - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta