Samkomulag við Slóvakíu vegna uppbyggingarsjóðs EES í höfn
Í dag undirritaði Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Slóvakíu, samkomulag um fyrirkomulag nýs framkvæmdatímabils Uppbyggingarsjóðs EES 2021-2028 milli Íslands, Liechteinstein og Noregs annars vegar og Slóvakíu hins vegar.
Samkomulagið kveður á um að Rannís verði sérstakur samstarfsaðili vegna áætlunar um staðbundna þróun á menningargrundvelli (e. The Culture Driven Local Development Programme) hvað menningarsamskipti varðar. Slóvakía er þriðja ríkið sem skrifað er undir slíkt samkomulag við, en nýlega voru undirrituð samkomulög við Pólland og Eistland.