Hoppa yfir valmynd
5. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Seinni úthlutun Tónlistarsjóðs fyrir árið 2025 - 58 verkefni hlutu styrk

Úthlutað hefur verið úr öllum deildum Tónlistarsjóðs, en sjóðurinn var stofnaður í fyrra á grundvelli tónlistarlaga sem sett voru í maí 2023. Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn þann 4. mars sl. og var umsóknarfrestur til 15. apríl. Hlutverk Tónlistarsjóðs er m.a. að efla íslenska tónlist, hljóðritagerð og þróunarstarf í íslenskum tónlistariðnaði með því að veita fjárhagslegan stuðning. Sjóðurinn skal einnig stuðla að kynningu á íslensku tónlistarfólki og tónsköpun þess hér á landi sem erlendis.

Sjóðnum er skipt í fjórar deildir sem allar hafa ólíkar áherslur og er ætlað að útvíkka úthlutanir til verkefna sem styrkja tónlistargeirann á sem breiðustum grunni. Tónlistarsjóður heyrir undir menningar- nýsköpunar- og háskólaráðuneyti og er í umsýslu Tónlistarmiðstöðvar. Ráðherra skipar sjálfstæðar úthlutunarnefndir fyrir allar fjórar deildir sjóðsins. Þær úthlutunarnefndir meta styrkhæfi umsókna og gera tillögur til ráðherra um afgreiðslu þeirra.


Í sjóðinn bárust alls 386 umsóknir og var heildarupphæð styrkumsókna 600.619.671 kr. Til úthlutunar voru 56.355.000 kr. sem veitt var til 58 verkefna sem skiptast svo á milli fjögurra deilda sjóðsins.

Frumsköpun og útgáfa - tónlistarstyrkir

198 umsóknir sóttu um alls 257.144.714 kr. Alls er 20.200.000 kr. veitt til 22 verkefna.

Hæstu verkefnastyrkina eða 1.750.000 kr. hvor fá hljómsveitin GRÓA og tónlistarmaðurinn Arnór Dan. Þá hlýtur Ingibjörg Guðlaugsdóttir 1.7 m.kr. í styrk og Skúli Sverrisson 1.5 m.kr.

Árangurshlutfall umsókna er 11%, 9% í sígildri og samtímatónlist, 11% í popp, rokk og indí, djass og blús, og rapp- og hip hop, 16% í raftónlist og minna í öðrum tónlistarstefnum.
23% úthlutaðrar upphæðar renna til verkefna í sígildri- og samtímatónlist, 35% til popp, rokk og indí, 16% til raftónlistar og það sem eftir stendur rennur til annarra tónlistarstefna.


Lifandi flutningur - flytjendastyrkir

98 umsóknir sóttu um alls 141.776.501 kr. Alls er 15.385.000 kr. úthlutað til 20 verkefna.

Kammerkórinn Schola Cantorum og hljómsveitin Umbra hljóta hæstu verkefnastyrkina eða 1.5 m.kr. hvor. Sviðslistahópurinn Óður, Benedikt Kristjánsson og Una Sveinbjarnardóttir hljóta öll verkefnastyrk upp á 1 m.kr.

Árangurshlutfall umsókna er 20%. 75% úthlutaðrar upphæðar renna til verkefna í sígildri og samtímatónlist, 8% til popp, rokk og indí, 10% til heims- og þjóðlagartónlistar og rest til annarra tónlistarstefna og er það nokkuð í samræmi við hlutfall milli tónlistarstefna sem sóttu um.

Gerður er einn langtímasamningur:
Kammerkórinn Cantoque hlýtur 3 m.kr. í langtímastyrk til tveggja ára fyrir starfsemi Cantoque Ensemble 2026-2027.


Auk þess eru eftirfarandi verkefni með langtímasamninga í gildi 2025:
Nordic Affect - 2.5 m.kr. (2025-2026)
Caput - 6 m.kr. (2024-2026)
Kammersveit Reykjavíkur - 5 m.kr. (2024-2026)
Cauda Collective - 1 m.kr. (2024-2025)


Þróun og innviðir - viðskiptastyrkir

67 umsóknir sóttu um samtals 170.560.899 kr. Úthlutað er 14.720.000 kr. til 10 verkefna.

Hæstu verkefnastyrkina upp á 2.5 m.kr. hljóta Iceland Sync Creative og VAKA þjóðlistahátíð. Þá hlýtur WindWorks í Norðri 2 m.kr. í styrk.

Heildar árangurshlutfall umsókna er 15%. 27% úthlutaðrar upphæðar renna til sígildrar og samtímatónlistar, 27% til popp, rokk og indí, 17% til heims- og þjóðlagatónlistar, 18% til verkefna sem vinna þvert á tónlistarstefnur og það sem eftir stendur til annarra tónlistarstefna.


Úthlutunarnefnd ákvað að veita enga nýja langtímasamninga í þessari úthlutun en eftirfarandi verkefni eru með langtímasamning í gildi 2025:
Myrkir músíkdagar - 4 m.kr. (2025-2026)
Óperudagar - 4 m.kr. (2024-2026)
Sönghátíð í Hafnarborg - 2 m.kr. (2024-2026)
Reykholtshátíð - 1 m.kr. (2024-2026)
Bræðslan - 1.5 m.kr. (2024-2026)
Sumartónleikar í Skálholti - 4 m.kr. (2024-2025)
Iceland Airwaves - 6 m.kr. (2024-2026)
Mengi - 3 m.kr. (2024-2025)


Útflutningur - markaðsstyrkir

23 umsóknir sóttu um 31.137.557 kr. Úthlutað er 6.050.000 kr. til 6 verkefna. Hæstu styrkina hljóta Bríet og Gyða Valtýsdóttir upp á 1.5 m.kr. hvor.

Árangurshlutfall umsókna er 26%. 72% úthlutaðrar upphæðar renna til verkefna í popp, rokk og indí, 17% til sígildrar og samtímatónlistar og 11% til raftónlistar.

Skipting veittra styrkja út frá kyni, landshlutum og tegund umsækjanda

Flestar umsóknir bárust frá verkefnum þar sem forsvarsmaður umsóknar var karl, eða 53,8% og 46,2% umsókna voru frá konum. Árangurshlutfall umsókna var 13% hjá körlum og 17% hjá konum.
Flestir styrkir Tónlistarsjóðs að þessu sinni eru veittir til einstaklinga eða 64%, 14% fara til fyrirtækja og aðrir styrkir til félagasamtaka, stofnanna og annarra umsækjenda.
Heildarárangurshlutfall umsókna er 15%. Alls 80% af veittri upphæð fara til verkefna á höfuðborgarsvæðinu, 12% til verkefna annars staðar á landinu og 8% til verkefna sem fara fram erlendis.

Úthlutunarnefndir skipuðu eftirfarandi:

Tónlistarstyrkir - Deild frumsköpunar og útgáfu:
Sindri Ástmarsson, formaður
Hafdís Bjarnadóttir
Kristjana Stefánsdóttir

Flytjendastyrkir - Deild lifandi flutnings:
Guðmundur Birgir Halldórsson, formaður
Elfa Lilja Gísladóttir
Arnar Eggert Thoroddsen

Viðskiptastyrkir - Deild innviða og þróunar:
Hildur Kristín Stefánsdóttir, formaður
Freyr Eyjólfsson
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir

Markaðsstyrkir - Deild útflutnings
Sindri Magnússon, formaður
Elíza Geirsdóttir Newman
Melkorka Ólafsdóttir


Listi yfir allar styrkveitingar


Frumsköpun og útgáfa - tónlistarstyrkir:
Arnór Dan Arnarson Arnór Dan fyrsta solo platan Úthlutuð upphæð: 1.750.000 kr.
Hrafnhildur Einarsdóttir Fimmta breiðskýfa GRÓU Úthlutuð upphæð: 1.750.000 kr.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir Urta Úthlutuð upphæð: 1.700.000 kr.
Skúli Sverrisson Ný plata með Bill Frisell Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Viktor Ingi Guðmundsson Temporary Troubles Úthlutuð upphæð: 1.250.000 kr.
Emmsjé ehf. MC Úthlutuð upphæð: 1.250.000 kr.
Sigurlaug Thorarensen BSÍ og stóru smáskífurnar þrjár Úthlutuð upphæð: 1.250.000 kr.
Kristofer Rodriguez Svönuson Watachico Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Tómas Ragnar Einarsson G&T Úthlutuð upphæð: 800.000 kr.
Ida Nielsen Juhl EP master. release and promotion Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Dýrfinna Benita Basalan Frelsi Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Ingibjörg Elsa Turchi Eonia-upptökur Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Torfi Tómasson Smáskífur TORFA 2025 Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Haukur Þór Harðarson Nýtt verk fyrir Kammersveit Reykjavíkur Úthlutuð upphæð: 750.000 kr.
Helgi Rafn Ingvarsson Veiðiferð með pabba að Hlíðarvatni Úthlutuð upphæð: 700.000 kr.
Hanna Mia Matsdóttir Jonstam Brekkan Breathe – Original EP by Hanna Mia Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Stirnir Kjartansson “The Possibility” fyrir rafmagnsgítarkór Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Sprengjuhöllin ehf Unfiled breiðskífa Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Valgerður G Halldórsdóttir Hugi Guðmundsson; Kórverk fyrir tvo kóra Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
de la Sól ehf. Tímaglas. fyrsta breiðskífa Sölku Sólar Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
John Patrick McCowen New Album of Compositions for Solo Contrabass Clarinet - recorded at
Hallgrímskirkja Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Árni Þór Árnason Tófa LP4 Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.


Lifandi flutningur - flytjendastyrkir
Kammerkórinn Cantoque Starfsemi Cantoque Ensemble 2026-2027 Úthlutuð upphæð: 3.000.000 kr.
Schola Cantorum.kammerkór Tónleika- og upptökuverkefni Schola Cantorum kammerkórs. Tvö starfsár. Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Penumbra slf. Starfsemi Umbru - 2025-2027 Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Sviðslistahópurinn Óður Hljómsveitarstyrkur til Óðs Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Benedikt Kristjánsson Jóhannesarpassíu J.S Bachs í 4. útgáfu ársins 1749 frumflutt á Íslandi Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Una Sveinbjarnardóttir Tónleikar Translations Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Sólveig Steinþórsdóttir Píanókvartettinn Negla flytur nýja íslenska píanókvartetta Úthlutuð upphæð: 800.000 kr.
Ingibjörg Guðlaugsdóttir Urta - söguljóð. Úthlutuð upphæð: 760.000 kr.
Hildigunnur Halldórsdóttir 15:15 tónleikasyrpan Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Iðunn Einarsdóttir Í hennar heimi - Tónleikar á Íslandi Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Þóra Kristín Gunnarsdóttir Hverfulleikinn Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Marína Ósk Þórólfsdóttir „Heima í stofu“ - Stofutónleikaröð á Eyrarbakka Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Bergþóra Linda Ægisdóttir Nýtt verk fyrir Bergþóru Ægisdóttur og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins Úthlutuð upphæð: 500.000 kr.
Ingibjörg Elsa Turchi Eonia-flutningur á Jazzhátíð Úthlutuð upphæð: 400.000 kr.
Örlygur Steinar Arnalds SVBKVLT kvöld í Reykjavík Úthlutuð upphæð: 400.000 kr.
Bryndís Guðjónsdóttir Í speglinum Úthlutuð upphæð: 400.000 kr.
Sönghópurinn Kyrja Medieval chant and polyphony. from Iceland and beyond Úthlutuð upphæð: 350.000 kr.
SlamCrew ehf. RUTHLESS ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Í IÐNÓ Úthlutuð upphæð: 300.000 kr.
Benjamín Gísli Einarsson Benjamín Gísli á tónleikaferðalagi um Ísland Úthlutuð upphæð: 250.000 kr.
Elín Gunnlaugsdóttir Ég sendi þér vals! Úthlutuð upphæð: 225.000 kr.


Útflutningur - markaðsstyrkir
Iceland Sync Management ehf. BRÍET herjar á alþjóðamarkað - Audience Development and Release Strategy with Blackstar Agency Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
marvaða ehf. Kynning á nýrri hljómplötu Gyðu Valtýsdóttur Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Tónskáldafélag Íslands Makaðssetning Myrkra músíkdaga erlendis Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Brynja Bjarnadóttir Önnur breiðskífa Brynju - Markaðssetning erlendis Úthlutuð upphæð: 800.000 kr.
Hekla Magnúsdóttir Hekla Turnar Úthlutuð upphæð: 650.000 kr.
Stefanía Pálsdóttir Markaðsherferð virgin orchestra fyrir EP plötu í UK Úthlutuð upphæð: 600.000 kr.


Þróun og innviðir - viðskiptastyrkir
Iceland Sync Management ehf. Lagahöfundabúðirnar AIRSONGS Úthlutuð upphæð: 2.500.000 kr.
Vökufélagið - Félag Þjóðlistafólks VAKA þjóðlistahátíð Úthlutuð upphæð: 2.500.000 kr.
Aulos. félagasamtök WindWorks í Norðri 2025 Úthlutuð upphæð: 2.000.000 kr.
State of the Art slf. State of the Art 2025 Úthlutuð upphæð: 1.650.000 kr.
Hrefna Helgadóttir GLITSKÝ MANAGEMENT – Fasi 2 Úthlutuð upphæð: 1.500.000 kr.
Við Djúpið Tónlistarhátíðin Við Djúpið Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Kammermúsíkklúbburinn Kammermúsíkklúbburinn 2025 - 2028 (þrjú starfsár) Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
RVK Tjörn ehf. Iðnó: Bæting innviða Úthlutuð upphæð: 1.000.000 kr.
Raflistafélag Íslands Raflost 2025 Úthlutuð upphæð: 900.000 kr.
Félag íslenskra hljómlistarmanna Jazz í Djúpinu Úthlutuð upphæð: 670.000 kr.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta