Hoppa yfir valmynd
6. júní 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Félags- og húsnæðismálaráðherra heimsótti Kvennaathvarfið 

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, heimsótti á dögunum Kvennaathvarfið og kynnti sér starfsemina. Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, tók á móti ráðherra og kynnti bæði húsnæðið og þjónustuna sem þar fer fram. Ráðherra hitti jafnframt ráðgjafa og fékk innsýn í dagleg störf þeirra.

„Kvennaathvarfið er lífsnauðsynlegt skjól. Þar fá konur og börn ekki aðeins vernd, heldur einnig von og stuðning við að byggja upp nýtt líf,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Kvennaathvarfið hefur starfað síðan um 1980 og veitir öruggt skjól fyrir konur og börn sem þurfa að flýja heimilisofbeldi – óháð búsetu eða lögheimili. Vaktsími athvarfsins er opinn allan sólarhringinn. Að jafnaði dvelja rúmlega tuttugu konur og börn í athvarfinu á hverjum degi en börn fylgja um helmingi kvenna í dvöl. 

Í Kvennaathvarfinu er einnig boðið upp á viðtalsþjónustu fyrir konur, hvort sem þær eru í dvöl eða ekki. Viðtölin eru ókeypis og þar er veittur stuðningur, ráðgjöf og upplýsingar um ofbeldi í nánum samböndum. 

Heimilislegt andrúmsloft

Sérstök áhersla er lögð á að skapa notalegt og heimilislegt andrúmsloft í Kvennaathvarfinu og sjá til þess að íbúar geti haldið áfram með daglegt líf sitt. Flestar konur sem þar dvelja halda áfram að sækja vinnu og börnin fara oftast í sína leik- og grunnskóla.

Kvennaathvarfið rekur einnig útibú á Akureyri sem hefur notið stuðnings ráðuneytisins. Sérfræðingar hjá Kvennaathvarfinu sinna einnig fræðslu og forvarnarstarfi um land allt. Þeir miðla þekkingu um eðli, umfang og afleiðingar heimilisofbeldis, sinna forvörnum og vinna að því að auka umræðu um ofbeldi í nánum samböndum.

Á næsta ári mun starfsemin í Reykjavík flytjast í nýtt og stærra húsnæði sem nú er í byggingu. Nýverið fór fram landssöfnun til stuðnings nýja athvarfinu og kom þar skýrt fram hve mikil velvild ríkir í samfélaginu gagnvart málefnum Kvennaathvarfsins.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta