Föstudagspóstur 6. júní 2025
Heil og sæl!
Við hefjum föstudagspóstinn að þessu sinni á hugleiðingum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um mikilvægi alþjóðasamstarfs og þess að Ísland taki þar fullan þátt.
„Frá mínu sjónarhorni séð tel ég að samtal og samvinna við aðrar þjóðir auki skilning þeirra á Íslandi og umhverfi okkar. Hvaðan við komum og fyrir hvað við stöndum,“ segir Þorgerður meðal annars.
Utanríkisráðherra hóf annars vikuna á leiðtogafundi B9-ríkjanna svokölluðu og Norðurlandanna. Tilgangur fundarins var að ræða stöðu öryggis- og varnarmála og ekki síður til að stilla saman strengi hvað varðar málefni Úkraínu í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Haag síðar í mánuðinum.
Þar átti hún einnig mikilvægt símtal við Vernon Coaker, varnarmálaráðherra Bretlands.Many thanks to 🇱🇹 for organising the Vilnius Summit of the B9+Nordics. Crucial talks on the unique transatlantic relationship & our collective defence. The Hague Summit - approaching quickly - must deliver a strong message of unity, resolve & unwavering support for 🇺🇦 pic.twitter.com/ZhZZN7qQCN
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) June 2, 2025
Í dag lýsti ráðherra yfir vonbrigðum yfir ákvörðun Bandaríkjanna um að beita fjóra dómara við alþjóðlega sakamáladómstólinn þvingunaraðgerðum.Important call with @Vernon_Coaker on 🇮🇸 🇬🇧 security and defence, pleased to hear about the UK gov strategic review, looking forward to strengthening our cooperation further. pic.twitter.com/oOMbVPSzQ6
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) June 2, 2025
US sanctions against four judges of the ICC are a deep disappointment and serve to undermine international criminal justice. Iceland is unwavering in its support for independent courts and the fight against impunity.
— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) June 6, 2025
Aukin útgjöld til varnarmála í þágu sameiginlegra varna, stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og undirbúningur fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Haag voru meginefni fundar varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem lauk í gær í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel.
Öryggi og varnir á norðurslóðum voru til umfjöllunar á árlegri ráðstefnu sem fram fór í Veröld – húsi Vigdísar á miðvikudag en ráðstefnan er samstarfsverkefni kanadískra og íslenskra stjórnvalda og fræðasamfélags beggja ríkja.
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, undirstrikaði mikilvægi UNFPA í jafnréttismálum á stjórnarfundi samtakanna.
Í Sameinuðu þjóðunum flutti Ísland einnig sameiginlegt ávarp Norðurlandanna um kynjajafnrétti.At the @UNFPA Annual Session of the Executive Board, Iceland highlighted Dr. Kanem's dedicated leadership and commitment to the wellbeing of women and girls around the world. UNFPA is one of 🇮🇸 key partners and we remain committed to our partnership.
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) June 4, 2025
📃 https://t.co/VUPXmQoIrv pic.twitter.com/wXQXxy49vj
Iceland delivered a statement on behalf of the Nordics 🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪 on Gender Equality at the Annual Session of the @UNDP Executive Board.
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) June 5, 2025
The Nordics strongly support UNDP’s critical work to advance gender equality and the empowerment of women and girls.
📄https://t.co/zjsOML5dGL pic.twitter.com/zWQgR6lVe3
Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Slóvakíu, undirritaði samkomulag um fyrirkomulag nýs framkvæmdatímabils Uppbyggingarsjóðs EES í vikunni.
Þá hitti Helga einnig kanslara Austurríkis, Christian Stocker, utanríkisráðherra Austurríkis, Beate Meinl-Reisinger, og ráðherra Evrópumála, Claudiu Plakolm, í móttöku í vikunni sem þau buðu sendiherrum erlendra ríkja til.
Í Washington stóðu sendiráð Norðurlandanna fyrir pallborðsumræðum um réttindi hinsegin fólks. Bjarndís Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78, tók þátt frá Íslandi.
Þá flutti innviðaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, erindi um réttindi hinsegin fólks.
Today 🇮🇸 Minister of Industries Hanna Katrín Friðriksson delivered keynote remarks at the #WorldPride2025 Human Rights Conference in DC, highlighting Iceland’s progress, importance of legislation, global backlash—and the urgent need to keep fighting for human rights for all 🌎🏳️🌈 pic.twitter.com/7LWjdamv0N
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) June 5, 2025
Sendiráðið okkar í Nýju Delí sagði frá nýju samstarfi Icelandair við Air India sem mun gera ferðalög milli Íslands og Indlands aðgengilegri.
Í Noregi buðu Högni sendiherra og Ásgerður til móttöku í embættisbústaðnum á Bygdøy með samstarfsaðilum sem komu að opinberri heimsókn forseta Íslands til Noregs í apríl síðastliðnum. Tilefni móttökunnar var að lýsa yfir þakklæti sendiráðsins fyrir frábært samstarf í aðdraganda heimsóknarinnar og meðan á henni stóð.
Þá tók Högni einnig þátt í NB8 hádegisverði í boði sendiherra Lettlands þar sem Ine Eriksen Søreide formaður utanríkis- og varnarmálanefndar Stórþingsins var gestur.
Það var mikið um að vera í Helsinki í vikunni. Það var meðal annars opið hús í Gallerie Käytävä í sendiherrabústaðnum.
Þá tók Harald Aspelund sendiherra þátt í NB8 viðburði á vegum Norræna fjárfestingabankans.
Einnig hádegisverði með utanríkisráðherra Eistlands, Margus Tsahkna, í boði sendiherra Svíþjóðar í Eistlandi.
Og flutti opnunarávarp þegar verk Ólafs Elíassonar, Long daylight pavilion, var vígt í Wiirinkallio, Kruunuvuorenranta.
Sendiráð Íslands í Kaupmannahöfn fékk Hinsegin kórinn í heimsókn í dag sem er staddur þar í borg í tengslum við Queertune Copenhagen hátíðina.
Sturla Sigurjónsson, sendiherra í London, bauð til útgáfuhófs í vikunni í tilefni af útgáfu nýrrar bókar Elízu Reid. Titill bókarinnar vísar vonandi ekki til starfsmanns utanríkisráðuneytisins!
Sendiráð Íslands í Varsjá fékk framhaldsskólanemendur í heimsókn.
Sendiráðið okkar í Tókýó hélt áfram að sýna okkur frá vel heppnaðri heimsókn forseta Íslands til landsins þar sem hún heimsótti norræna skálann á heimssýningunni í Osaka og tók þátt í sérstökum þjóðardegi Íslands.
Við endum þetta á skemmtilegu myndbandi frá norska sendiráðinu í Prag, sem sýnir margbreytileika norrænu tungumálanna!
Góða hvítasunnuhelgi!
Upplýsingadeild