Hoppa yfir valmynd
6. júní 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Lög samþykkt á Alþingi sem auka rétt foreldra til sorgarleyfis

Alþingi samþykkti nú rétt í þessu frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um breytingar á lögum um sorgarleyfi. Lögin fela í sér aukinn rétt foreldra til sorgarleyfis og styrkja enn frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum.

Sorgarleyfi er lagalegur réttur foreldra til að fá leyfi frá störfum í kjölfar barnsmissis í sex mánuði og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á meðan. Með nýju lögunum nær sorgarleyfi einnig til foreldra sem missa maka og eiga börn yngri en 18 ára. Foreldrar sem ekki eru í vinnu eða í minna en 25% starfi geta átt rétt á sorgarstyrk.

„Gríðarlegt álag fylgir því að missa maka og vera á sama tíma til staðar fyrir syrgjandi barn. Ákall hafði verið um að við stæðum með foreldrum í þessari stöðu – og það höfum við nú gert. Með nýju lögunum veitum við fólki svigrúm til að syrgja og tíma til að vera til staðar fyrir börnin sín á erfiðustu stundum lífsins,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Sorgarleyfið veitir fólki rými til að ná einfaldlega andanum, finna fótfestu í nýjum veruleika og safna hugrekki til að lifa áfram með sorginni. Þetta eru þannig manneskjuleg lög sem skipta miklu máli.“

Víðtæk samstaða um lögin

Víðtæk samstaða var um lagabreytingarnar í umsögnum um frumvarpið. Þau voru til að mynda talin mikil réttarbót og mikilvægt skref í átt að betri félagslegum stuðningi fyrir þá sem missa nákomna. 

Sorgarmiðstöðin benti í umsögn sinni á að breytingarnar veittu nauðsynlegt svigrúm til að styðja við sorgarúrvinnslu barna. 

„Slíkt svigrúm er forsenda þess að fjölskyldur geti leitað viðeigandi úrræða sem stuðla að farsælli endurkomu foreldra á vinnumarkað og aðstoða börn við að taka aftur virkan þátt í daglegu lífi og samfélagi eftir áföll.“

Lengra sorgarleyfi í ákveðnum tilfellum

Til viðbótar fela lögin í sér að:

• Foreldri á nú sjálfstæðan rétt til sorgarleyfis eða sorgarstyrks í allt að þrjá mánuði frá þeim degi sem fósturlát eftir 18 vikna meðgöngu á sér stað. Áður var tímabilið tveir mánuðir.

• Foreldri sem verið hefur í samfelldu starfi á nú sjálfstæðan rétt á sorgarleyfi eða sorgarstyrk í allt að sex mánuði frá þeim degi sem andvanafæðing á sér stað eftir 22 vikna meðgöngu. Áður var tímabilið þrír mánuðir.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta