Hoppa yfir valmynd
6. júní 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Ráðherra í leikfimi með eldra fólki – vekur athygli á mikilvægi hreyfingar alla ævi

Líf og fjör í leikfimitíma hjá Betri borgurum hjá Fylki. - myndBjartur lífsstíll.

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, skellti sér í íþróttafötin og mætti í leikfimitíma í tengslum við átakið Hreyfing alla ævi. Markmið þess er að hvetja eldra fólk um land allt til að stunda reglulega hreyfingu. Eftir kröftugan leikfimitíma með eldra fólki hjá Fylki hafði Inga þetta að segja:

„Það er orðið alltof langt síðan ég fór síðast í leikfimi – en nú er ég mætt! Ég er sjálf 65 ára og veit hvaða máli þetta skiptir. Þetta er ekki bara lýðheilsumál heldur lífsgæðamál. Hreyfing heldur okkur gangandi – bókstaflega! Málefni eldra fólks eru mér hjartans mál þannig að ég er óskaplega glöð í dag, bæði með heilsueflinguna fyrir eldra fólk og púlið hér í morgun.“

Það er Bjartur lífsstíll sem stendur að baki átakinu en þar er unnið markvisst að því að efla heilsu og vellíðan meðal eldri aldurshópa. Nýtt upplýsingasvæði hefur verið opnað og á vefnum island.is/hreyfing-fyrir-60 er nú hægt að nálgast upplýsingar um hreyfingu og tómstundir fyrir 60 ára og eldri eftir sveitarfélögum vítt og breitt um landið.

Markmiðið er að gera eldri fólki kleift að sjá með auðveldum hætti hvaða úrræði og tækifæri eru í boði í þeirra sveitarfélagi – og hvetja það til að taka þátt.

Hreyfing sem hluti af daglegu lífi

Bjartur lífsstíll hófst haustið 2021 með stuðningi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Nafn verkefnisins var valið með það að leiðarljósi að hreyfing verði hluti af lífsstíl eldra fólks – eitthvað sem er gert reglulega, með gleði og ánægju.

Lögð hefur verið áhersla á að virkja tengslanet félaga eldri borgara víðs vegar um landið, sem og íþróttahreyfinguna. Unnið hefur verið náið með íþróttafélögum, líkamsræktarstöðvum, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu til að tryggja að eldra fólk hafi greiðan aðgang að hreyfingu í sínu nærumhverfi. Átakið fellur vel að aðgerðaáætluninni Gott að eldast en ein af aðgerðunum þar er alhliða heilsuefling.

„Við finnum fyrir miklum áhuga sveitarfélaga vítt og breitt um landið að gera vel í þessum efnum. Í dag eru flest þeirra að bjóða upp á skipulagða hreyfingu eða aðgang að aðstöðu fyrir þennan aldurshóp. Okkar hlutverk hefur verið að styðja við sveitarfélög við að efla heilsu eldra fólks, meðal annars með því að skapa sameiginlegan vettvang þar sem fulltrúar sveitarfélaga koma saman, deila reynslu, fá leiðbeiningar, fræðslu og ráðgjöf. Við leggjum ríka áherslu á að hreyfing sé alltaf í boði í hverju sveitarfélagi, aðgengileg, fjölbreytt og skemmtileg,“ segja Ásta Sigurjónsdóttir og Margrét Regína Grétarsdóttir, verkefnisstjórar hjá Björtum lífsstíl.

„Á efri árum er sérstaklega mikilvægt að varðveita vöðvastyrk og stunda styrktar- og jafnvægisþjálfun. Með reglulegri hreyfingu við hæfi má hægja á áhrifum og einkennum öldrunar og viðhalda getunni til að lifa lengur sjálfstæðu lífi,“ bæta þær við og hvetja eldra fólk til að finna hreyfingu við sitt hæfi í sínu nærumhverfi.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta