Hoppa yfir valmynd
6. júní 2025 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skuldahlutfall ríkissjóðs lækkar um 5% við uppgjör ÍL-sjóðs

Tillaga um uppgjör ÍL-sjóðs var lögð fyrir fund skuldabréfaeigenda í flokkunum HFF34 og HFF44 þann 10. apríl s.l. og var hún samþykkt með meirihluta atkvæða. Virði HFF-bréfanna í uppgjörinu er metið á 651 ma.kr. Í framhaldi var óskað eftir heimild í frumvarpi til fjáraukalaga til að ganga til uppgjörs í samræmi við tillöguna og samþykkti Alþingi frumvarpið á dögunum.

Uppgjör skuldbindinga ÍL-sjóðs fer fram þann 12. júní. Í tengslum við uppgjörið mun ríkissjóður gefa út níu nýja flokka ríkisbréfa (sjá töflu), samtals að nafnverði 487 ma.kr.

 

 

Nafnverð

RIKS 29 0917

67.000.000.000

RIKS 34 1016

60.353.539.382

RIKS 36 0815

59.000.000.000

RIKS 39 1115

49.000.000.000

RIKS 41 0815

50.000.000.000

RIKS 44 1017

50.313.049.596

RIKS 47 1115

48.000.000.000

RIKS 50 0915

47.000.000.000

RIKB 32 1015

56.000.000.000

   

Með afhendingu umræddra bréfa greiðir ríkissjóður upp lán sem ÍL-sjóður veitti ríkissjóði á árunum 2020 og 2021, samtals að fjárhæð 238 ma.kr.

Ríkissjóður mun einnig afhenda 378 milljónir evra (um 55 ma.kr.) af gjaldeyrisinnstæðum sem fjármagnaðar voru með nýlegri skuldabréfaútgáfu í evrum.

Við uppgjörið mun ríkissjóður fá afhentar aðrar eignir ÍL-sjóðs en þær sem verða nýttar í uppgjörinu; þ.á.m. skuldabréf Húsnæðissjóðs, lánasafn og skuldabréf Bríetar leigufélags, samtals að fjárhæð um 222 ma.kr.

Nettó áhrif á skuldahlutföll A hluta ríkissjóðs (skilgreining skv. Maastricht) eru lækkun um rúmlega 5% af VLF.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta