Vel sótt vinnustofa um einföldun og skilvirkni í orkumálum
Mjög góð þátttaka var í vinnustofu um einföldun og skilvirkni í stjórnsýslu orkumála, sem Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, bauð fulltrúum orkufyrirtækja og öðrum hagsmunaaðilum til á Hótel Natura í gær. Hátt í 80 fulltrúar fyrirtækja tóku þátt samtali um stöðu orkumála, helstu tækifæri og forgangsröðun út frá áherslum nýrrar ríkisstjórnar. Líflegar umræður voru milli þátttakenda í hringborðsumræðum þar sem fjöldi áhugaverðra hugmynda kom fram.
Í opnunarávarpi sínu fjallaði Jóhann Páll um þau skref sem þegar hafa verið stigin frá því að ný ríkisstjórn tók við til þess að hraða málsmeðferð og stytta afgreiðslutíma, meðal annars með breyttum verkferlum og umboðsreglum hjá Umhverfis- og orkustofnun sem hafa stóraukið afkastagetu stofnunarinnar án þess að veittur sé afsláttur af umhverfiskröfum og góðri málsmeðferð. Ráðherra fjallaði jafnframt um lagabreytingar sem nú eru í farvatninu þar sem kveðið er á um að stjórnvöld setji töluleg markmið um raforkuöflun til tíu ára í senn og sem tengd verði ferli rammaáætlunar þannig að röðun virkjunarkosta endurspegli vilja stjórnvalda til orkuöflunar.
Líflegar umræður voru milli þátttakenda.
Sérfræðingar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins fóru yfir stöðu mála varðandi frekari einföldun og aukna skilvirkni stjórnsýslu orkumála þar sem fram kom að áhersla væri lögð á að stytta afgreiðslutíma og einfalda ferli leyfisumsókna en tryggja um leið gæði og gagnsæi. Með frumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu er dregið úr flækjustigi með margháttuðum breytingum á tíu lagabálkum er hafa með umhverfis-, orku- og auðlindamál að gera. Umhverfis- og orkustofnun verður veitt víðtæk heimild til þess að sameina afgreiðslu mismunandi leyfa í eina leyfisveitingu og kveðið er á um að virkjunarframkvæmdir sem raðað hefur verið í orkunýtingarflokk rammaáætlunar með samþykki Alþingis, njóti sérstakrar forgangsmeðferðar hjá stofnuninni. Samhliða framlagningu þessa frumvarps hefur ráðherra lagt til umtalsverðar breytingar á umgjörð rammaáætlunar til þess að tryggja aukna skilvirkni og festu í ferlinu. Þeirri vinnu verður haldið áfram með öðru lagafrumvarpi næsta haust.
Fjöldi ábendinga barst frá þátttakendum vinnustofunnar um það sem betur má fara í regluverki og stjórnsýslu orkumála. Ráðuneytið mun vinna áfram með þær tillögur við gerð lagafrumvarpa sem fyrirhugað er að leggja fram á næsta löggjafarþingi.
Jóhann Páll Jóhansson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra „Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er staðráðin í að ryðja burt hindrunum, óþarfa reglubyrði og skriffinnsku. Þetta kallar á gott samtal við framkvæmdaraðilana og fyrirtækin sem þekkja flöskuhálsana af eigin raun.“