Hoppa yfir valmynd
10. júní 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

„Stolt, fötluð og þakklát“ – áhrifaríkt ávarp félags- og húsnæðismálaráðherra á aðildarríkjaþingi í New York

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, á þinginu. Við hlið hennar eru Eiður Welding, fulltrúi UngÖBÍ, og Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York. - myndÁgúst Flygenring

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávarpaði í kvöld þing aðildarríkja um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem nú er hafið í New York. Ávarp ráðherra var óvenjulegt og áhrifamikið en þar deildi hún lífshlaupi sínu sem lögblindur, fatlaður einstaklingur.

„Ég hef minna en 10% sjón, hef aldrei ekið bíl eða séð haustlitina. En ég er félags- og húsnæðismálaráðherra – fyrsta manneskjan með fötlun sem gegnir ráðherraembætti á Íslandi,“ sagði hún.

Í ávarpinu fór hún yfir það hvernig hún veiktist alvarlega sem barn og missti nær alla sjón. 

„Ég ólst upp í litlu sjávarplássi og skammaðist mín fyrir að vera blind. Ég var öðruvísi – og var lögð í einelti. Ég gat ekki varið mig, sá hvorki snjóboltana né steinana sem var kastað í mig. Mig dreymdi um menntun en ég sá ekki stafina í kennslubókunum og flosnaði upp úr skóla,“ sagði hún. 

Fram kom að hún hafi haldið að hún myndi aldrei eignast mann eða börn en svo hafi hún kynnst eiginmanni sínum og fjögur yndisleg börn komið í heiminn. Síðan hafi allt breyst.

Maðurinn hennar hafi lent í slysi og ekki getað unnið lengur.

„Fátæktin var miskunnarlaus. Sonur minn var efnilegur fótboltamaður en við höfðum ekki efni á skóm. Hann spilaði í gömlum skóm sem voru svo þröngir að táneglurnar duttu af honum. Litlu stelpuna mína dreymdi um að læra á fiðlu en það var utan seilingar. Elsta son minn langaði til að halda áfram námi en við áttum ekki fyrir strætókorti til að hann kæmist í skólann. 

Að horfa á drauma þeirra fjara út særði mig djúpt.

Ég kenndi sjálfri mér um.“

Sá óréttlætið þrátt fyrir mikla sjónskerðingu

Ráðherra deildi því að mörgum árum síðar hafi hún loksins fengið stuðning vegna fötlunar sinnar. Áratugum saman hafi hún upplifað að hún ætti ekki stað í samfélaginu, væri óæskileg, en loksins hafi hindrununum verið rutt úr vegi. Hún hafi fengið akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og aðstoð við að sjá orðin á blaðinu.

Aðstoðin sem ráðherra vísaði í var frá Sjónstöðinni en þar fékk hún aðgengi að hjálpartækjum og starfsfólkið stækkaði námsefnið fyrir hana. 

„Þökk sé þessu lauk ég laganámi þegar ég var 56 ára!“ sagði ráðherra. 

Hún bætti við að á þeim tímapunkti hafi hún spurt sjálfa sig að því hvernig hún gæti best orðið að liði. 

„Þrátt fyrir að vera lögblind sá ég óréttlætið skýrt.“

Hún hafi stofnað stjórnmálaflokk til að berjast gegn fátækt og bæta líf fatlaðs fólks, hreyfingin hafi vaxið, hún orðið þingmaður og síðar ráðherra. 

Mikilvægt að tryggja að fatlað fólki njóti réttinda sinna

Þing aðildarríkjanna er árlegt og hverfist sem fyrr segir um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Fram kom í ávarpi ráðherra að lögfesting sáttmálans á Íslandi hafi djúpa persónulega þýðingu fyrir hana. Hún hafi þegar mælt fyrir frumvarpi um lögfestinguna og muni fylgja því fast eftir.  

„Reynsla mín hefur kennt mér að þegar við breytum viðhorfi samfélagsins gagnvart fötlun getum við breytt lífi fólks og opnað nýjar dyr. Draumar mínir rættust þökk sé stuðningnum sem ég fékk – og réttindunum sem ég fékk loksins að njóta. Réttindunum sem þessi sáttmáli – sem er mér svo kær – setur svo skýrt fram,“ sagði hún og þakkaði fundargestum innilega fyrir sitt framlag til málaflokksins.

„Og hér er ég nú. Tilbúin að brjóta niður múrana sem enn hamla því að fatlað fólk fái virkjað allan sinn mannauð.

Stolt. Fötluð. Og óendanlega þakklát.

Ekkert um okkur án okkar. Takk fyrir.“ 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta