Breyting á reglugerð um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs í Samráðsgátt
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs nr. 609/1996.
Reglugerðinni er einkum ætlað að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/852 um breytingu á tilskipun 94/62/EB um umbúðir og umbúðaúrgang og 5. mgr. 6. gr. og 1. mgr. 9. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið .
Meðal helstu breytinga er að kveðið er á um skyldu til lágmarkshlutfalls endurunnins plasts í einnota plastflöskum fyrir drykkjarvörur eða 25% frá 1. janúar 2026 og 30% frá 1. janúar 2030. Jafnframt eru sett söfnunarmarkmið fyrir einnota plastflöskur fyrir drykkjarvörur sem eru 77% að lágmarki fyrir lok árs 2025 en 90% fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir. Fyrir lok árs 2029 skal hlutfallið hafa náð 90% í báðum tilvikum.
Hér á landi hefur verið skilakerfi á drykkjarumbúðum í 35 ár sem hefur skilað framúrskarandi árangri á heimsvísu. Til að tryggja sem mesta söfnun á þessum umbúðum er lagt á þær skilagjald sem er endurgreitt neytendum við skil. Söfnunarhlutfall einnota drykkjarumbúða úr plasti, sem eru í skilakerfinu, hefur verið um 90% síðustu ár. Stjórnvöld vilja halda áfram á sömu vegferð og ekki setja lægri kröfur fyrir þær umbúðir sem bera skilagjald en árangurinn hingað til gefur tilefni til. Af þeim sökum er lagt til að markmiðin verði mismunandi eftir því hvort plastflöskurnar beri skilagjald eða ekki.
Einnig er kveðið á um ný endurvinnslumarkmið fyrir umbúðaúrgang sem ber að ná annars vegar fyrir árslok 2025 og árslok 2030. Markmiðunum er skipt í lágmarksárangur fyrir umbúðaúrgang í heild en einnig eru sett sértæk markmið fyrir ólíkar úrgangstegundir, þ.e. plast, við, járnríka málma, ál, gler og pappír og pappa.
Þá er reglugerðinni ætlað að innleiða með tilvísun tilteknar framkvæmdarákvarðanir Framkvæmdastjórnar Evrópuþingsins og Evrópusambandsins, þar sem mælt er fyrir um eyðublöð fyrir gagnagrunnskerfi um umbúðir og umbúðaúrgang.
Allar tillögur að breytingum á reglugerðinni eru nánar raktar inn á vef samráðsgáttar.
Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 7. júlí nk.
Drög að breytingu á reglugerð um meðferð umbúða og umbúðaúrgangs nr. 609/1996