Hátíðardagskrá á Austurvelli á þjóðhátíðardaginn með breyttu sniði
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní fer fram hátíðarguðsþjónusta í Dómkirkjunni í Reykjavík og að henni lokinni hefst hátíðardagskrá á Austurvelli. Athöfnin verður með breyttu sniði í ár þar sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur boðið Höllu Tómasdóttur forseta Íslands að flytja hátíðarávarpið sem allt fram til þessa hefur verið í höndum forsætisráðherra. Að auki verður tilhögun nú með þeim hætti að athöfnin verður sýnilegri almenningi en áður.
Hátíðarathöfnin á Austurvelli verður í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV og bein útvarpsútsending verður frá hátíðarguðsþjónustunni kl. 10.15.
Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og fjallkonan flytur ávarp en venju samkvæmt hvílir leynd yfir því hver hún er þar til hún gengur út á völlinn. Að lokinni athöfn fer skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallakirkjugarð. Frekari upplýsingar um hátíðarhöld og götulokanir í borginni má nálgast á vefnum www.17juni.is.
Dagskrá á Austurvelli hefst kl. 11.10:
Kórinn Graduale Nobili syngur Yfir voru ættarlandi
Forsætisráðherra leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar
Kór syngur þjóðsönginn
Hátíðarræða forseta Íslands
Kór syngur Hver á sér fegra föðurland
Fjallkonan flytur ávarp
Hornleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika Ég vil elska mitt land
Skrúðganga frá Austurvelli í Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu kl. 11.50.