Norræn samstaða í baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, sótti árlegan fund norrænna dómsmálaráðherra sem haldinn var í Helsinki dagana 3.–4. júní 2025. Á fundinum ræddu ráðherrarnir um að efla sameiginlega baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi og styrkja viðnámsþrótt réttarríkisins á krísutímum. Áhersla var lögð á samhæfingu aðgerða, aukið samstarf og miðlun reynslu milli landanna.
Eitt af lykilatriðum norræns samstarfs á sviði dómsmála er baráttan gegn skipulagðri glæpastarfsemi og þátttöku barna og ungmenna í glæpum. Þar fellur meðal annars mansal undir og var sérstök umfjöllun um miðlun reynslu af aðgerðum gegn mansali, sér í lagi þegar börn eru fórnarlömb.
Á fundinum kom einnig fram að glæpasamtök nýti sér tæknina í miklum mæli og það traust sem einkenni norrænt samfélag. Lögð var áhersla á nauðsyn þess að styrkja getu lögreglu til að nýta nýjustu tækni til að bregðast við þessum vanda. Þá sé vert að huga að samstarfi við stóru tæknifyrirtækin og hlutverk þeirra í nýliðun ungs fólks í glæpastarfsemi, auk þess að koma málinu áfram innan Evrópusambandsins.
Annað mikilvægt umræðuefni var viðbúnaður landanna á víðsjárverðum tímum og hvernig unnt er að verja löndin gegn blönduðum ógnum á borð við áhrifaherferðir, skemmdarverk og skipulagða glæpastarfsemi.
Þá var lögð mikil áhersla á að efla viðnámsþrótt lýðræðis og réttarríkisins, þar með talið undirbúning fyrir neyðarástand og viðhald reglna réttarríkisins á krísutímum. Málefnið tengist jafnframt starfinu við að efla réttaröryggi og lýðræði með áherslu á að treysta réttarkerfið og viðnámsþrótt lýðræðisins ásamt því að efla hlutdeild almennings í hvoru tveggja.
Fundurinn í Helsinki endurspeglar vilja Norðurlandanna til að vinna saman að því að tryggja öryggi, réttlæti og stöðugleika í samfélögum sínum.