Ísland áfram efst á sæti á lista yfir jafnrétti kynjanna
Ísland er áfram efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) yfir jafnrétti kynjanna sem birtist í gær. Ísland hefur vermt efsta sætið frá árinu 2009 og hefur sýnt nokkuð jafna og jákvæða þróun frá 2006.
Listinn er birtur í árlegri skýrslu sem ber yfirskriftina Alþjóðlega kynjabilið (e. Global Gender Gap) og mælir hann árlega stöðu og þróun jafnréttis kynja á fjórum meginsviðum: Atvinnutækifærum, tækifærum til menntunar, heilbrigðismálum og stjórnmálaþátttöku.
Ísland eina landið yfir 90 stigum
Heildarskor Íslands í vísitölunni hefur hækkað úr 78,1% árið 2006 í 92,6% árið 2025. Á sama tímabili hefur bilið milli Íslands og heimsmeðaltalsins aukist úr 14,0 prósentustigum í 23,6 prósentustig.
„Ísland er eina landið í heiminum sem nær yfir 90 prósentustig. Þetta er frábær árangur sem þakka má þrotlausri og samhentri vinnu þvert á samfélagið okkar. Frammistaða okkar byggir einkum á árangri í stjórnmálalegri valdeflingu kvenna og hefur Ísland nú lokað 95,4% kynjabilsins a því sviði, sem nemur fjórföldu alþjóðlegu meðaltali,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála.
Betur má ef duga skal
Þorbjörg Sigríður tók fram að þótt um góðan árangur sé að ræða heilt yfir megi enn gera betur á ýmsum sviðum og séu það mikil vonbrigði að sjá að Ísland hafi í raun lækkað um 0,9 prósentustig frá 2024.
„Því miður hefur árangur sveiflast nokkuð á sviði atvinnutækifæra, sem í ár mældist 79,8 stig sem er allnokkuð lægra en þau 84,6 stig sem við mældumst með árið 2021. Lækkunin stafar aðallega af minni áætluðum tekjum kvenna og fækkun kvenna meðal þingmanna, embættismanna og stjórnenda.
Þá má einnig greina neikvæða þróun í heilbrigðismálum, þar sem skorið fer úr 97% árið 2016 í 96% árið 2025. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða sérstaklega og athuga hvar hægt sé að gera betur.“
Ráðherra bendir á að Þrátt fyrir að breytingin sé hlutfallslega lítil, liggur skor Íslands nú undir bæði evrópsku og alþjóðlegu meðaltali þegar kemur að heilbrigðismálum. Vert er að taka fram að þótt lífslíkur séu almennt háar á Íslandi, er það í fyrsta sinn í áratug sem spáð er að konur eigi styttri heilsusamlega ævi en karlar.
Listi Alþjóðaefnahagsráðsins mælir stöðu jafnréttismála í 148 löndum og var fyrst birtur árið 2006 en miðað við þróunina stefnir í að fullt jafnrétti náist ekki fyrr en eftir 123 ár.