Ný stjórn Persónuverndar – Dóra Sif Tynes skipuð formaður
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað fjóra nýja aðalmenn og fjóra nýja varamenn í stjórn Persónuverndar til fimm ára, frá og með 10. júní 2025.
Nýr formaður stjórnar er Dóra Sif Tynes, lögmaður og eigandi hjá ADVEL. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í Evrópurétti og samanburðarlögfræði frá European University Institute í Flórens á Ítalíu árið 2000. Áður hefur hún starfað sem forstöðumaður lagaskrifstofu EFTA í Brussel. Dóra Sif hefur mikla reynslu af málflutningi bæði fyrir EFTA dómstólnum og dómstólum ESB og meðal annars sérhæft sig á sviði persónuverndarréttar.
Stjórnin er þannig skipuð:
Aðalmenn:
- Dóra Sif Tynes, lögmaður, formaður, skipuð án tilnefningar til 9. júní 2030
- Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, lögfræðingur, varaformaður, skipuð án tilnefningar til 19. febrúar 2028
- Thor Aspelund, prófessor, tilnefndur af heilbrigðisráðherra, skipaður til 9. júní 2030
- Gunnar Ingi Ágústsson, lögfræðingur, tilnefndur af innviðaráðherra , skipaður til 9. júní 2030
- Jónas Sturla Sverrisson, öryggisstjóri, tilnefndur af Skýrslutæknifélagi Íslands, skipaður til 9. júní 2030
Varamenn:
- Sigurjón Ingvason, lögfræðingur, skipaður án tilnefningar til 9. júní 2030
- Andrés Þorleifsson, lögfræðingur, skipaður án tilnefningar til 9. júní 2030
- Guðbjörg Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur, tilnefnd af heilbrigðisráðherra, skipuð til 9. júní 2030
- Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður, tilnefnd af háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, skipuð til 19. desember 2028
- Guðrún Valdís Jónsdóttir, öryggisstjóri, tilnefnd af Skýrslutæknifélagi Íslands, skipuð til 9. júní 2030
Stjórn Persónuverndar er skipuð skv. 38. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.