Hoppa yfir valmynd
12. júní 2025 Heilbrigðisráðuneytið

Upphafsfundur nefndar WHO um lýðheilsu og loftslagsbreytingar

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra - mynd

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tók þátt í upphafsfundi nefndar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) um lýðheilsu og loftslagsbreytingar sem fram fór í Hörpu í gær. Formaður nefndarinnar er Katrín Jakobsdóttir en í henni sitja ellefu fulltrúar, m.a. fyrrverandi stjórnmálaleiðtogar og áhrifamiklir einstaklingar með þekkingu á sviði loftslags- og heilbrigðismála. Dr. Hans Kluge, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO kom til Íslands af þessu tilefni. Hann og Alma áttu tvíhliða fund þar sem þau ræddu m.a. um smáríkjasamstarf WHO, lýðheilsu og forvarnir, geðheilbrigðismál, aðgerðir gegn ofbeldi og síðast en ekki síst ástand heilbrigðismála á Gaza.

Loftslagsbreytingar eru gríðarleg ógn við lýðheilsu á heimsvísu. Hlutverk nefndar WHO er að meta áhrif lofslagsbreytinga á heilsu fólks og móta tillögur sem ríki Evrópu geta nýtt sér til að sporna við alvarlegum áhrifum loftslagsbreytinga. Liður í því er að efla pólitíska vitund og vilja stjórnmálamanna til að takast á við þennan vanda með markvissum aðgerðum.

  • Alma D. Möller heilbrigðisráðherra og Dr. Hans Kluge, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO - mynd
  • Upphafsfundur nefndar WHO um lýðheilsu og loftslagsbreytingar - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta