Hoppa yfir valmynd
13. júní 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Einföldun rekstrarumhverfis – Starfleyfisskyldu létt af 23 flokkum atvinnurekstrar samkvæmt reglugerðardrögum ráðherra ​

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra - myndSveinn Speight

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 830/2022.

Með boðuðum breytingum er lagt til að starfsleyfisskyldu sé létt af 23 tegundum atvinnustarfsemi og að í staðinn sé einvörðungu gerð krafa um skráningu. Lagt er til að umræddum flokkum, meðal annars rekstri veitingastaða, samkomuhúsa og íþróttahúsa, sé bætt inn í reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur.

Skráning felur í sér skráningu tiltekins atvinnurekstrar sem tiltekinn er í viðauka reglugerðarinnar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu. Skráning er ekki auglýst í fjórar vikur líkt og starfsleyfi og ekki er gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráning er ótímabundin en starfsleyfi er gefið út til tiltekins tíma. Ef starfsemi er bæði starfsleyfisskyld og skráningarskyld þá vegur starfsleyfisskyldan þyngra en skráningin og aðeins þarf að sækja um starfsleyfi.

Er þannig stuðlað að bættu viðmóti, einföldu aðgengi að stjórnsýslu og aukinni skilvirkni með því að fella undir reglugerðina atvinnustarfsemi, s.s. veitingastarfsemi, og þar með háð skráningu í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu þar sem við á. Að sama skapi er létt á álagi á stjórnsýslu án þess að slegið sé af kröfum sem um skráningarskylda starfsemi gilda.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Í dag kynni ég einföldun á regluverki sem felur í sér að skyldunni til að afla starfsleyfis vegna hollustuhátta og mengunarvarna er létt af 23 tegundum atvinnustarfsemi. Að sama skapi fellur niður krafan um auglýsingu í fjórar vikur og aðeins verður gerð krafa um skráningu og viðeigandi gagnaskil. Með þessu stígum við afgerandi skref í þágu einfaldara regluverks og sveigjanlegra rekstrarumhverfis fyrir fólk og fyrirtæki.“

Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 18. júní nk.

Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta