Fyrsta útnefning sérstæðra birkiskóga
Land og skógur hefur gefið út fyrstu skrána um sérstæða eða vistfræðilega mikilvæga birkiskóga á Íslandi og leifar þeirra. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur samþykkt tíu sérstæða birkiskóga samkvæmt skráningunni, sem sérstakur vinnuhópur hjá Landi og skógi hefur það hlutverk að skilgreina. Skógana má skoða í sérstakri vefsjá stofnunarinnar.
Afmörkun og skráning birkiskóglendis, sem nýtur sérstakrar verndar, er lögbundið hlutverk Lands og skógar. Með birkiskógum er átt við þá skóga sem einkennast af náttúrulegri nýliðun og aldursdreifingu, þar sem m.a. eru gömul tré og þar sem vex dæmigerður botngróður birkiskóga. Birki er ein af fáum náttúrulegum trjátegundum á Íslandi og teljast birkiskógar til lykilvistkerfa á Íslandi.
Skógarnir sem nú hafa hlotið samþykki ráðuneytisins eru nokkuð dreifðir um landið. Heildarflatarmál svæðanna er 7.396 hektarar af skógi og kjarri, sem er um 5% af flatarmáli birkiskóga á Íslandi.
Skráning sérstæðra birkiskóga er sífelluverkefni og verður hún endurskoðuð eftir því sem betri upplýsingar liggja fyrir um sérstæða og vistfræðilega mikilvæga skóga.