Íslenskt frumkvæði að baki norrænu verkefni um þátttöku ungs fólks í matvælakerfum
Áhugi ungs fólks á því að starfa innan matvælageirans á Norðurlöndum hefur dregist saman – á sama tíma og þörfin fyrir þátttöku þeirra er brýnni en nokkru sinni fyrr. Þetta kom fram á fundi norrænna ráðherra landbúnaðar, matvæla og sjávarútvegs sem haldinn var í Kuopio í Finnlandi dagana 11.–12. júní. Ráðuneytisstjóri sótti fundinn fyrir hönd ráðherra að þessu sinni.
Á fundinum voru kynntar fyrstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins Growing Food(ies), sem miðar að því að efla áhuga ungs fólks á störfum í matvælakerfum. Verkefnið var sett á laggirnar að íslensku frumkvæði á ráðherrafundi í Keflavík í júní 2023 og er unnið á vegum rannsóknarstofnunarinnar Nordregio.
Í kynningunni kom fram að mikilvægt væri að styðja ungt fólk með menntun og tengslamyndun, og að draga fram jákvæðar fyrirmyndir meðal ungra frumkvöðla í greinunum.
„Við verðum að skapa raunveruleg tækifæri fyrir ungt fólk til þátttöku á öllum stigum matvælakeðjunnar – í framleiðslu, vinnslu og rannsóknum,“ sagði Sari Essayah, landbúnaðar- og skógræktarráðherra Finnlands.
Karen Ellemann, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, tók í sama streng: „Ungt fólk gegnir lykilhlutverki í að móta norrænt matvælakerfi sem er sjálfbært, nýskapandi og aðlaðandi.“
Lesa má meira um verkefnið á nordregio.org/research/young-nordic-food-producers-growing-foodies/