Hoppa yfir valmynd
13. júní 2025 Atvinnuvegaráðuneytið

Ógnvekjandi þróun víða um heim

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra heldur erindi á mannréttindaráðstefnu World Pride í Washington DC - mynd

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hélt á dögunum erindi á mannréttindaráðstefnu World Pride í Washington DC sem fulltrúi íslenskra stjórnvalda. Þar lýsti hún djúpum áhyggjum af neikvæðri þróun í réttindabaráttu hinsegin fólks á heimsvísu og benti á vaxandi áhrif skipulagðra öfgahreyfinga sem ógna sjálfum grundvallargildum lýðræðisins: frelsi, jafnrétti og mannréttindum.

„Réttindi LGBT+ fólks hafa orðið pólitískur gjaldmiðill í höndum popúlistískra stjórnmálamanna. Trans fólk hefur orðið verst úti, en aðrir hópar innan hinsegin samfélagsins standa einnig frammi fyrir árásum,“ sagði hún og lagði áherslu á mikilvægi þess að verja rétt­indi hinseg­in fólks með skýr­um lög­um og sagði laga­setn­ingu öfl­ug­asta vopnið gegn bak­slagi í jafn­rétt­is­mál­um.

Ísland efst á réttindakortum

Í ræðu sinni fór Hanna Katrín yfir árangur Íslands í réttindamálum hinsegin fólks. Ísland er nú í fyrsta sæti á réttindakorti TGUE (Transgender Europe) annað árið í röð og í þriðja sæti á Regnbogakorti ILGA-Europe, þar féll landið um eitt sætið þrátt fyrir að hækka í stigum en Belgía skaust fram fyrir okkur með markvissum lagabreytingum gegn hatursorðræðu. Þá trónir Ísland efst á Spartacus Gay Travel Index yfir áfangastaði LGBT+ ferðalanga.

Hanna Katrín benti á að þessi árangur væri fyrst og fremst til kominn vegna skýrrar stefnumótunar stjórnvalda og lagasetningar, m.a. um jafna meðferð á vinnumarkaði, kynrænt sjálfræði og bann við umbreytingarmeðferðum. Einnig hefur fræðslu- og forvarnarstarf aukist, sem og stuðningur við félagasamtök sem vinna að réttindum hinsegin barna og ungmenna.

„Íslensk stjórnvöld munu áfram standa vörð um mannréttindi LGBT+ fólks og halda áfram lagabótum – ekki aðeins til að halda góðri stöðu á mælikvörðum heldur til að leggja sitt af mörkum til betri heims. Utanríkisstefnan verður áfram nýtt til að verja og efla réttindi hinsegin fólks á heimsvísu,“ sagði hún að lokum og bætti við:
„Frelsi okkar er ófrávíkjanlegur réttur – og við munum aldrei hætta að berjast fyrir honum.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta