Hoppa yfir valmynd
13. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

Samfélagsöryggi og afnám stjórnsýsluhindrana á fundi samstarfsráðherra Norðurlanda

Logi Einarsson er samstarfsráðherra Norðurlanda. - mynd

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, tók þátt í fundi samstarfsráðherra Norðurlanda í Helsinki í Finnlandi 10.-11. júní 2025. Á fundinum ræddu ráðherrarnir meðal annars samfélagsöryggi og viðbúnað, samstarfið á þessu sviði innan Norrænu ráðherranefndarinnar og hlutverk samstarfsráðherranna út frá yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlanda frá því 26. maí sl. Viðbúnaður er eitt af þverlægum áherslumálum í samstarfsáætlunum ráðherranefnda til ársins 2030 og einnig eitt áhersluatriða í formennsku Finnlands og Álandseyja í Norrænu ráðherranefndinni á árinu. 

Einnig var tekin ákvörðun um áherslur samstarfsráðherranna við afnám stjórnsýsluhindrana, eins og mælt er fyrir um í nýrri áætlun fyrir frjálsa för á Norðurlöndum 2025-2030 sem tók gildi í ársbyrjun. Áætlunin miðar að samþættum Norðurlöndum án stjórnsýsluhindrana með það að markmiði að það sé sem einfaldast að flytja, vinna, stunda nám eða reka fyrirtæki þvert á landamæri Norðurlanda án þess að stjórnsýsluhindranir eða önnur vandamál tengd frjálsri för standi í vegi fyrir því.

Samstarfsráðherrarnir ákváðu að leggja sérstaka áherslu á afnám stafrænna stjórnsýsluhindrana sem auðvelda á stafræna þjónustu þvert á landamæri og stafrænan hreyfanleika einstaklinga. Í því felst m.a. að hægt verði að nota rafræn skilríki frá heimalandi til að fá þjónustu í öðru landi. Þá er til umræðu að leggja einnig áherslu á fleiri málefni. Ráðherrarnir funduðu með stjórnsýsluhindranaráðinu um yfirstandandi verkefni og málefni og lýstu yfir stuðningi við mikilvægt starf ráðsins.

Fulltrúar Norðurlandanna á fundinum.

Í tengslum við fundinn kynntu samstarfsráðherrarnir sér einnig starfsemi norrænu menningargáttarinnar (NKK) í Helsinki, og heimsóttu neðanjarðarbyrgi í miðborg Helsinki til afnota fyrir íbúa þegar hætta steðjar að. 

„Þetta var góður fundur samstarfsráðherra Norðurlanda sem eru samstíga í verkefnum fram undan og samstarfið skiptir miklu máli. Einnig var gagnlegt að funda með stjórnsýsluhindranaráðinu sem gegnir mikilvægu hlutverki við að varpa ljósi á stjórnsýsluhindranir sem við viljum afnema til að tryggja að það sé auðvelt að flytja milli Norðurlanda til að vinna, stunda nám eða reka fyrirtæki. Á fundinum ákváðum við að leggja sérstaka áherslu á afnám stafrænna stjórnsýsluhindrana. Það hefur mikið áunnist við að vinna að pólitísku framtíðarsýn okkar 2030 um að gera Norðurlöndin að samþættasta og sjálfbærasta svæði heims, en það er enn verk að vinna,“ segir Logi Einarsson, samstarfsráðherra Norðurlanda.

Samstarfsráðherrar Norðurlanda fara í umboði forsætisráðherra landanna með samræmingu norræna ríkisstjórnarsamstarfsins á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, sem fram fer í 12 ráðherranefndum á mismunandi málefnasviðum og nefndum embættismanna og vinnuhópa undir þeim. Í norræna ríkisstjórnarsamstarfinu eru mörg mikilvæg og brýn samfélagsleg mál til meðferðar þar sem unnið er að sameiginlegum lausnum á þeim sviðum þar sem Norðurlöndin geta náð betri árangri með því að vinna saman með norrænt notagildi (nordisk nytte) að leiðarljósi. Unnið er eftir pólitísku stefnumótuninni ,,framtíðarsýn okkar 2030“ um að Norðurlöndin verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030 með áherslu á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd. Í upphafi árs tóku gildi fjórtán samstarfsáætlanir ráðherranefnda á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir samtals 12 ráðherranefndir sem munu gilda fyrir árin 2025-2030, þar sem tilgreind eru markmið og undirmarkmið starfsins á næstu árum eftir málaflokkum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta