Helgi Magnús Gunnarsson biðst lausnar frá embætti
Helgi Magnús Gunnarssonar, fráfarandi vararíkissaksóknari, hefur synjað flutningi í embætti aðstoðarríkislögreglustjóra. Hann lætur því af embætti.
Dómsmálaráðherra þakkar Helga Magnúsi Gunnarssyni fyrir gott starf. „Hann er góður lögfræðingur og málflytjandi og ég óska honum velfarnaðar í leik og starfi,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. „Ég erfði þetta mál frá fyrirrennara mínum og gerði mitt besta til að leysa það faglega og í sátt við alla hlutaðeigandi.“
Aðdragandi máls
Forsaga málsins er sú að í júlí 2024 vísaði ríkissaksóknari til þáverandi dómsmálaráðherra, Guðrúnar Hafsteinsdóttur, máli sem varðaði ummæli vararíkissaksóknara á opinberum vettvangi. Taldi ríkissaksóknari vararíkissaksóknara ekki hafa bætt ráð sitt í kjölfar áminningar sem hún hafði veitt honum tveimur árum áður heldur hefði hann aftur sýnt af sér háttsemi sem ekki væri sæmandi embætti hans.
Í rökstuðningi þáverandi dómsmálaráðherra í september 2024 kom fram að ummæli vararíkissaksóknara hefðu verið óviðeigandi og til þess fallin að grafa undir trúverðugleika embættis ríkissaksóknara og ákæruvaldsins í heild. Aftur á móti taldi þáverandi dómsmálaráðherra ekki forsendur til að veita vararíkissaksóknara lausn um stundarsakir.
Eftir þessa niðurstöðu kom ríkissaksóknari því á framfæri við dómsmálaráðuneytið að hann teldi vararíkissaksóknara skorta almenn hæfisskilyrði til að gegna embættinu.
Mikilvægt að tryggja traust á ákæruvaldi
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra er bundin ákvörðun fyrirrennara síns og taldi ekki hægt að una við þessa stöðu. Mikilvægt væri að tryggja að ákæruvaldið væri starfshæft og nyti trausts almennings.
Í því ljósi ákvað dómsmálaráðherra að flytja vararíkissaksóknara í embætti aðstoðarríkislögreglustjóra. Í því sambandi var litið til langs ferils vararíkissaksóknara innan ákæruvaldsins og yfirgripsmikillar þekkingar á málefnum löggæslu. Sjónarmið vararíkissaksóknara vegna fyrirhugaðrar ákvörðunar um flutning bárust í byrjun júní. Kom þar meðal annars fram að vararíkissaksóknari setti sig ekki upp á móti fyrirhugaðri ákvörðun um flutning. Ef slík ákvörðun yrði tekin, myndi hann sjálfur taka ákvörðun á grundvelli 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 enda væri hann æviskipaður embættismaður.
Vararíkissaksóknari tilkynnti dómsmálaráðherra í dag að hann synjaði flutningi. Í því felst að hann lætur af embætti. Samkvæmt 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar á hann rétt á lögmæltum eftirlaunum.