Hoppa yfir valmynd
16. júní 2025 Heilbrigðisráðuneytið

Útskrift 30 sjúkraliða úr diplómanámi á sviði öldrunar- heimahjúkrunar og samfélagsgeðhjúkrunar

Frá útskrift sjúkraliða úr fagnámi diplómanema við Háskólann á Akureyri vorið 2025 - mynd

Þriðji hópur sjúkraliða sem lýkur diplómaprófi frá Háskólanum á Akureyri útskrifaðist um nýliðna helgi. Námið er tveggja ára fagnám á tveimur kjörsviðum til diplómaprófs, annars vegar á sviði öldrunar- og heimahjúkrunar og hins vegar samfélagsgeðhjúkrunar. Námið er sveigjanlegt sem gerir nemendum sem vilja auka þekkingu sína á þessum sviðum kleift að sinna náminu samhliða starfi.

„Ég óska hópnum innilega til hamingju með áfangann og árangurinn. Þetta er mikilvægt nám sem styrkir þá sem ljúka því í starfi og eflir og bætir þjónustu við þá sjúklingahópa sem námið beinist að. Þeir sem ljúka þessu námi eru mikilvægur mannauður fyrir heilbrigðiskerfið og ég hvet heilbrigðisstofnanir og fyrirtæki til að nýta krafta þeirra“ segir Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra.

Trú á faginu og framtíðinni

Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands bendir á að það sé ekki sjálfgefið að leggja í framhaldsnám samhliða vinnu, fjölskyldulífi og öðrum skyldum. „Það krefst elju, aga og brennandi áhuga á starfinu sem við sinnum. En það er líka áminning um það sem við vitum, að sjúkraliðar vilja vaxa, þroskast og leggja enn meira af mörkum í heilbrigðisþjónustunni. Ég hef fylgst með þessum frábæru sjúkraliðum og veit að þetta er ekki bara próf, heldur trú á sjálfum sér, trú á faginu og trú á framtíðina“ segir Sandra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta