Hoppa yfir valmynd
17. júní 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Gleðilega þjóðhátíð: Að tendra hið andlega ljós

Í dag, 17. júní, á þjóðhátíðardegi Íslands og á fæðingardegi sjálfstæðishetjunnar Jóns Sigurðssonar, er viðeigandi að rifja upp námsþorsta Jóns og tengingu hans við háskólasamfélagið. Jón var framsýnn brautryðjandi á mörgum sviðum og hvikaði ekki frá þeirri sýn sinni að menntun og framfarir í menntamálum væru eitt allra stærsta velferðarmál íslensku þjóðarinnar. Í skrifum sínum kom hann reglulega og af festu inn á menntamál og var ófeiminn við að tjá sig frá hjartanu því menntun þjóðar var einmitt það; hans hjartans mál.


    ...skólinn á að tendra hið andliga ljós, og hið andliga afl, og veita alla þá þekkíngu sem gjöra má menn    hæfiliga til framkvæmdar öllu góðu, sem auðið má verða.

                                                                                            Jón Sigurðsson, Ný félagsrit 2. árgangur, 1842


Til minningar um Jón og þann lærdóm og innblástur sem hann færði landi voru og þjóð var fæðingardagur hans valinn sem stofndagur Háskóla Íslands árið 1911 og sem þjóðhátíðardagur Íslendinga þegar lýðveldið Ísland var stofnað þann 17. júní árið 1944.

„Sem ráðherra háskólamála og íslenskunnar finn ég sterka tengingu við skrif Jóns Sigurðssonar og þann kyndil sem ég nú ber. Ég efast ekki um að Jón sæi tækifærin í þeirri tæknibyltingu sem við stöndum í og hvernig auka má velferð þjóðarinnar til muna sé unnið markvisst að þeim efnum samhliða menntamálum,“ segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.

 

Ráðherra ávarpaði nýstúdenta

 

Í dag útskrifast fjöldi nema um allt land og flutti ráðherra ávarp í tilefni dagsins við útskrift Menntaskólans á Akureyri, sama skóla og hann er stúdent frá. Notaði hann tækifærið og hvatti nýstúdentana til að velja sér nám eftir áhugasviði án þess að ofhugsa eftirleikinn og njóta lærdómsins sem fylgir þeirri vegferð.

„Sem námsmenn hafið þið valið að draga ályktanir út frá vönduðum gögnum og vel ígrundaðri þekkingu og dýpri samræðum. Námið hefur ekki aðeins veitt ykkur svör, heldur einnig hæfileikann til að spyrja betri spurninga. Slík hæfni er verðmæt. Sem námsmenn hafið þið líka tekið þátt í að skapa samfélag. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Til að vera hluti af samfélagi þurfum við að kynnast öðru fólki, ræða við það í raunheimum og búa til sameiginlega reynslu.

Mörg ykkar ákveða nú eflaust að taka frí frá námi; fara að vinna eða ferðast og þá er rétt að muna að í því felst líka heilmikill lærdómur. Önnur stefna hins vegar á háskólanám strax næsta haust.

Háskólar eru samfélög - fullir af fólki sem deila áhugamálum og ástríðu fyrir því að vita meira í dag en í gær. Þar eru þúsundir stúdenta og kennara sem hafa metnað fyrir því að læra og pæla í hlutunum, uppgötva eitthvað nýtt og gera líf sitt og annarra betra í leiðinni. Þetta er einstakt andrúmsloft sem vert er að njóta og nýta.

Látið hjartað ráða för og veljið ykkur nám sem þið hafið áhuga á og ykkur mun þykja spennandi og veltið ykkur ekki of mikið upp úr því hvar þið munuð starfa eftir námið. Brian May, gítarleikari í Queen er doktor í stjörnufræði, áhrifavaldurinn Linda Ben er lífefnafræðingur, Rowan Atkinson, betur þekktur sem Mr. Bean, er rafmagnsverkfræðingur og ég er arkitekt en starfa sem ráðherra. 

Hvaða leið sem þið farið og hvar sem þið endið er líklega besta ráðið sem hægt er að gefa ykkur að temja ykkur heiðarleika, auðmýkt og hógværð en líka hæfilega dirfsku - og mátulegt kæruleysi þegar það á við. Njótið þess óvænta og grípið þau tækifæri sem gefast. Allt sem þið takið ykkur fyrir hendur af heilum hug mun nýtast ykkur,“ sagði ráðherra og óskaði viðstöddum til hamingju með áfangann og þjóðhátíðardaginn.

  • Styttan af Jóni Sigurðssyni við Austurvöll. - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta