Hoppa yfir valmynd
18. júní 2025 Utanríkisráðuneytið

Háskóli unga fólksins heimsótti utanríkisráðuneytið

Nemendur við Háskóla unga fólksins ásamt Martini Eyjólfssyni, ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, og Aðalsteini Leifssyni aðstoðarmanni utanríkisráðherra. - mynd

Utanríkisráðuneytið fékk skemmtilega heimsókn í síðustu viku þegar hópur krakka frá Háskóla unga fólksins kom í ráðuneytið til að fræðast um Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun og hvernig íslensk stjórnvöld vinna að þeim. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, og Aðalsteinn Leifsson, aðstoðarmaður ráðherra, nýttu tækifærið og heilsuðu upp á krakkana. 

Háskóli unga fólksins er fyrir fróðleiksfúsa og fjöruga krakka á aldrinum 12 -14 ára. Meginmarkmið skólans er að vekja áhuga ungs fólks á námi, vísindum og fræðum og gefa þeim tækifæri til að fræðast um allt milli himins og jarðar.

Á þemadegi hélt Félag Sameinuðu þjóðanna ratleik um heimsmarkmiðin, þar sem nemendur leituðu lausna við heimsmarkmiðunum víða um háskólasvæðið. Undir lok ratleiksins héldu nemendurnir svo í áðurnefnda heimsókn til utanríkisráðuneytisins, þar sem markmiðið var að tengja heimsmarkmiðin við raunverulegt starf íslenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi og gefa innsýn í hvernig Ísland vinnur að heimsmarkmiðunum í gegnum utanríkisstefnu, þróunarsamvinnu, mannréttindamál og samstarf við Sameinuðu þjóðirnar.

  • Krakkarnir fræðast um störf íslensku utanríkisþjónustunnar. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta